Aukaúthlutun úr safnasjóði 2020 – flýtt úthlutun vegna COVID-19

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað úr flýttri aukaúthlutun safnasjóðs 2020. Að þessu sinni er aukaúthlutun safnasjóðs u.þ.b. hálfu ári fyrr á ferðinni en venjulega, enda er brýn þörf hjá söfnum vegna áhrifa COVID-19 faraldursins.

Bárust alls 37 umsóknir að heildarupphæð 61.195.000 kr. Allar umsóknir hljóta styrk og er heildarstyrkveiting 40.124.000 kr.

Flýtt aukaúthlutun var með öðru sniði en venjulega, en styrkur var veittur til eflingar á faglegu starfi safnanna og verður að nýta styrkupphæðina á árinu 2020.
Í aukaúthlutun safnasjóðs geta eingöngu viðurkennd söfn hlotið styrk, ekki er tekið á móti umsóknum frá öðrum aðilum, er þeim bent á aðalúthlutun safnasjóðs.

Lista yfir styrkveitingar og styrkþega má finna hér.