Úthlutað úr aðalúthlutun 2020 úr safnasjóði

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnasjóðs 2020

Í aðalúthlutun safnasjóðs 2020 bárust sjóðnum 200 umsóknir frá 50 aðilum, frá 45 viðurkenndum söfnum og 5 öðrum aðilum.

177 umsóknir bárust um styrki til eins árs að heildarupphæð 275.469.165 kr. og 23 Öndvegisumsóknir bárust að heildarupphæð fyrir árið 2020 kr. 80.325.500 og fyrir allan styrktímann 2020 – 2022 kr. 237.712.100.

Á fundi safnaráðs þann 15. febrúar sl. voru samþykktar umsagnir ráðsins um styrkumsóknir úr aðalúthlutun safnasjóðs 2020, í samræmi við ákvæði 7. gr. safnalaga nr. 141/2011. Gerðar voru tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um úthlutun styrkja úr sjóðnum, en skv. 7. mgr. 22. gr. safnalaga úthlutar ráðherra styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs. Ráðherra hefur nú ákveðið úthlutun styrkja úr sjóðnum.

Heildarstyrkupphæð fyrir árið 2020 úr aðalúthlutun safnasjóðs 2020 er 177.243.000 kr.

Veittir eru 111 styrkir til eins árs að heildarupphæð 139.543.000 kr.

Veittir eru 13 Öndvegisstyrkir sem skiptast svo: fyrir árið 2020 kr. 37.700.000, fyrir árið 2021 kr. 40.700.000 og fyrir árið 2021 kr. 32.000.000. Heildarupphæðin fyrir styrktímann er 110.400.000 kr.

Safnaráð óskar styrkþegum til hamingju – heildarlisti um styrkveitingar úr aðalúthlutun safnasjóðs má finna hér.