Aukaúthlutun 2018 – símenntunarstyrkir til viðurkenndra safna 2018

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað símenntunarstyrkjum til viðurkenndra safna úr aukaúthlutun safnasjóðs 2018, alls 11.512.100 kr.

Veittar voru tvær tegundir styrkja, Símenntun fyrir starfsmenn safns annars vegar og Námskeið/fyrirlesarar hins vegar. Símenntun fyrir starfsmenn safns má nota til að sækja formlega menntun (til dæmis með skipulögðum námskeiðum) eða til óformlegri námsferða, svo sem heimsókn á söfn hérlendis sem erlendis, eða sem ferða- og uppihaldsstyrk til starfsmannaskipta safna. Styrktegundin Námskeið/fyrirlesarar er hugsuð sem styrkveiting til námskeiðshalds eða fyrirlestra innanlands sem gæti nýst stærri hóp safnamanna.

Að þessu sinni fékk 31 viðurkennt safn alls 43 símenntunarstyrki, frá 80.000 kr. til 300.000 kr. hver. 28 styrkir af tegundinni Símenntun fyrir starfsmenn safns voru veittir, alls 7.645.100 kr. og 15 styrkir voru veittir af tegundinni Námskeið/fyrirlesarar, alls 3.867.000 kr..

Lista yfir styrkveitingar og styrkþega má finna hér.