Hanaholmen Heritage – The Nordic-Baltic Cooperation for Cultural Heritage and Preparedness.
Í maí síðastliðnum sótti Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs og Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, þriggja daga vinnufund í Hanaholmen í Finnlandi. Þau voru skipuð af Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu sem fulltrúar Íslands í samstarfsverkefninu Hanaholmen Heritage – The Nordic-Baltic Cooperation for Cultural Heritage and Preparedness. Frumkvæðið að verkefninu kemur frá menningarmálaráðherrum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar, en verkefnið er hýst af sænsk-finnska menningarsetrinu Hanaholmen. Öllum Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum, ásamt Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum, var boðið að tilnefna tvo fulltrúa til þátttöku.

Um er að ræða undirbúnings- og samstarfsverkefni sérfræðinga á sviði menningarmála til að efla viðbragðsáætlanir og vernd menningararfs. Tilefnið er vaxandi spenna í alþjóðamálum og ófriður í Evrópu með innrásarstríði Rússa í Úkraínu, þar sem kerfisbundnar árásir á úkraínskan menningararf sýna að varðveislumál eru mikilvægur hluti af öryggis- og varnarmálum þjóða. Á námskeiðinu komu saman sérfræðingar á ólíkum sviðum, meðal annars hernaðarsérfræðingar, lögfræðingar, sagnfræðingar og safnafræðingar, til að ræða viðbrögð við hernaðarógnun, fjölþáttaógnum (e. hybrid-threats) og loftlagsbreytingum.
Vinnan hófst snemma árs 2026 með fjarfundum þar sem þátttakendur fengu kynningu og vinnuáætlun. Í kjölfari þeirrar vinnu var þriggja daga staðnámskeið í Hanaholmen 11.-13. maí, þar sóttu þátttakendur fyrirlestra sérfræðinga, deildu reynslu sín á milli og unnu í þverfaglegum vinnuhópum að því að greina veikleika og móta áætlanir um hvernig ríkin geti í sameiningu unnið að forvörnum, aukið seiglu og undirbúið viðbragðsáætlanir.

Stór hluti vinnunnar fólst í umræðum vinnuhópa, þar voru þrjú meginumfjöllunarefni. Í fyrsta lagi var rætt um jafnvægi á milli opins aðgengis almennings og öryggisgæslu, en niðurstaðan var sú að sýnilegur menningararfur njóti meiri verndar í samfélaginu, aftur á móti þá stafar aukin hætta að stafrænum gögnum vegna t.d. tölvuárása. Í öðru lagi var fjallað um vernd menningararfs minnihlutahópa og frumbyggja, þar var lögð áhersla á að hóparnir fái sjálfir að skilgreina sína sögu. Í þriðja lagi unnu hóparnir að forgangsröðun þegar kemur að neyðarástandi, en sú vinnustofa var undir stjórn World Monuments Fund. Þar kom fram að viðbragðsáætlunum þurfi að fylgja verklegar æfingar sem eru samþættar inn í daglega ferla, því þótt áætlanir á blaði séu nauðsynlegar, kallar raunverulegt neyðarástand yfirleitt á úrræðagóðar útfærslur og sveigjanleika.
Fyrirlesarar á námskeiðinu voru á einu máli um að lýðræðisríki ættu að auka vægi menningararfs í öryggismálum og að menningarvernd eigi að vera hluti af þjóðaröryggi ríkja auk þess ætti að efla vægi menningararfs innan NATO. En það er vel þekkt að einræðisríki noti menningu og sögu sem pólitísk verkfæri til að t.d. réttlæta aðgerðir á fölskum forsendum, þá dregur Haag-samninginn frá 1954 fram mikilvægi lagalegrar umgjarðar til að unnt sé að draga aðila til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi. Jafnframt var fjallað um dæmi frá Gaza og Úkraínu sem sýna mikilvægi stafrænna gagna og menningarsögulegra gagnasafna til að viðhalda menningar- og samfélagsminni þó að sjálfar minjarnar eyðileggist.

Vinnustofunni var fylgt eftir með ráðstefnu, The Hanaholmen Heritage Conference, sem fór fram 28. maí þar sem alþjóðlegir sérfræðingar og fagfólk frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum fjallaði um málefnið á þessum tímum óvissu, loftlagsbreytinga og spennu á alþjóðavettvangi.