Dagana 11.-12. júní sótti Safnaráð ráðstefnu í Stokkhólmi sem bar yfirskriftina Cultural Heritage and Cultural Resilience – Nordic-Baltic Conference on Civil Preparedness sem mætti þýða sem ”Menningararfleifð og menningarlegt viðnám – Norræn-Baltnesk ráðstefna um forvarnir“.
Hér má finna upptöku af fyrirlestrum og umræðum frá fyrsta deginum.
Forvarnir og viðbragðsáætlanir til verndunar menningarminjum hafa verið í brennidepli hjá norrænum og baltneskum ráðherrum menningarmála, en þeir undirituðu viljayfirlýsingu þann 3. maí sl. þar sem þeir heita nánara samstarfi á milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna til að mæta auknum áskorunum í menningarstarfi í vegna aukinnar spennu á alþjóðavettvangi.
Haag-samningur UNESCO frá 1954 um vernd menningarverðmæta komi til vopnaðra átaka, er einn mikilvægasti og umfangsmesti fjölþjóðasamningur sem snýr að verndun menningarverðmæta. Þar sem Ísland hefur nú staðfest umræddan samning (sjá nánar hér) er það verkefni viðurkenndra safna á Íslandi að vinna að forvarnarstarfi og gerð viðbragðsáætlana vegna ýmiss konar ógna, t.a.m. náttúru- og loftslagsvá.
Ráðstefnan var haldin í framhaldi af viljayfirlýsingunni þar sem markmiðið var að setja meiri kraft í forvarnir og gerð viðbragðsáætlana til verndunar menningararfi og menningarminja, nú sérstaklega þegar viðbúnaðarstig hefur aukist sökum spennu á alþjóðavettvangi og stríðsátaka í Evrópu. Markmið þessarar ráðstefnu var að deila þeirri reynslu sem hefur orðið til á Norðurlöndunum og Eystrasaltríkjunum og auka samstarf menningarstofnana til að standa betur vörð um menningararfleiðina. Fjölmargir sérfræðingar og fulltrúar menningarmála komu saman á ráðstefnunni til að deila þekkingu og reynslu á því sviði.
Forvarnir til verndar menningararfs
Ráðstefnan, sem stóð yfir í tvo daga, innihélt þétta dagskrá og fjölda áhugaverðra og ólíkra erinda frá ýmsum fræðimönnum og sérfræðingum á sviði forvarna ásamt reynslusögum af söfnum og frá einstaklingum.
Susanne Thedéen, starfandi forstöðumaður Riksantikvarieämbetet (Minjastofnun Svíþjóðar) opnaði ráðstefnuna. Þar fjallaði hún um hvernig Norðurlöndin og Eystrasaltríki væru tengd, ekki síst í gegnum sameiginlega menningararfleifð okkar.
Parisa Liljestrand, menningarráðherra Svíþjóðar, flutti setningarræðuna og benti meðal annars á viljayfirlýsinguna fyrrnefndu. Í yfirlýsingunni segir að Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin verði að efla viðbúnað vegna menningararfs og menningarstarfsemi og að miðlun þekkingar og innlendrar sérfræðiþekkinga á milli landanna sé mikilvægur liður í að efla viðbúnað. Þá áréttaði menningarráðherrann mikilvægi þess að vernda menningararfinn og viðhalda menningarstarfi á krísutímum, nú þegar viðbúnaðarstig hefur aukist.
Menningarfulltrúar frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum áttu frumkvæði að ráðstefnunni, sem var haldin á vegum Riksantikvarieämbetet (Minjastofnun Svíþjóðar) ásamt Statens kulturråd (Menningarráði Svíþjóðar), Riksantikvaren Menningarminjastofnuninni Noregs) og Museovirastio (Safna- og minjastofnun Finnlands). Ráðstefnan var haldin með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar en Svíþjóð fer með formennsku í ráðinu í ár.
Dagskrá með fjölbreyttum áherslum
Dagskráin spannaði yfirgripsmikið svið varnar og öryggismála vegna menningarminja. Fyrirlesarar og þátttakendur komu frá Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Lettlandi, Litháen, Noregi, Svíþjóð og Álandseyjum.
Til að nefna nokkur dæmi var t.m. danski fræðimaðurinn og núverandi forstöðumaður The Nordic Center for Cultural Heritage and Armed Conflict (CHAC) Norrænu miðstöðvarinnar fyrir menningararfleifð og vopnuð átök, Frederik Rosén, sem fjallaði um „Menningararfleifð og öryggi: Norðurlönd í forystu NATO“ (Cultural heritage and security: A Nordic lead in NATO) og hvernig utanríkisstefnur stjórnvalda fjalla með ólíkum hætti um mikilvægi menningarverðmæta út frá þjóðaröryggismálum.
Listakonan Lusine Djanyan, sem er einnig meðlimur hópsins Pussy Riot, hélt erindið „Einræði og menningarlegt þjóðarmorð“ og Ruth Tiidor, forstöðumaður varðveislu í Þjóðskjalasafni Eistlands, ásamt Marie Lennersand, yfirmanni öryggismála hjá sænka Þjóðskjalasafninu, fluttu erindið Civil Preparedness for achives eða „Forvarnir skjalasafna“.
Khazar Fatemi, blaða- og heimildagerðakona sem lýsti reynslu sinni og fjölskyldu sinnar á áhrifaríkan hátt þegar fjölskylda hennar sem er af kúrdískum uppruna flúði frá Íran, þar sem menning heimalands hennar spilaði ríkan þátt í að styrkja þau á flóttanum.
Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir annar forstöðumaður Tækniminjasafns Íslands hélt erindi um þann afdrifaríka dag 18. desember 2020 þegar stór aurskriða féll í Seyðisfirði á fjölmörg hús þar á meðal á safnasvæði Tækniminjasafnsins. Í erindi sínu fjallaði Elfa um það vandasama björgunarstarf sem fór fram í kjölfarið og vinnu við endurreisn safnsins.
Hér má lesa nánar um ráðstefnuna og dagskrá hennar