Aukaúthlutun úr safnasjóði 2019 – símenntunarstyrkir til viðurkenndra safna

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað 47 símenntunarstyrkjum til viðurkenndra safna úr aukaúthlutun safnasjóðs 2019 að heildarupphæð 12.186.800 kr.

Veittar voru tvær tegundir styrkja, Símenntun fyrir starfsmenn safns annars vegar og Námskeið/fyrirlesarar hins vegar. Símenntun fyrir starfsmenn safns má nota m.a. til að sækja formlega menntun eða sem ferða- og uppihaldsstyrk til starfsmannaskipta safna. Styrktegundin Námskeið/fyrirlesarar er hugsuð sem styrkveiting til námskeiðshalds eða fyrirlestra innanlands sem gæti nýst stærri hóp safnamanna.

Að þessu sinni fengu 29 viðurkennd söfn alls 47 símenntunarstyrki, frá 52.000 kr. til 300.000 kr. hver. 40 styrkir af tegundinni Símenntun fyrir starfsmenn safns voru veittir, alls 10.166.800 kr. og 7 styrkir voru veittir af tegundinni Námskeið/fyrirlesarar, alls 2.020.000 kr.

Lista yfir styrkveitingar og styrkþega má finna hér.