Úthlutun úr safnasjóði 2014

Listi yfir úthlutun úr safnasjóði 2014

Mennta og menningarmálaráðherra hefur nú úthlutað úr safnasjóði að fenginni tillögu safnaráðs. Bréf hafa verið send til umsækjenda.

Tillaga safnaráðs var unnin samkvæmt úthlutunarreglum ráðsins frá 18.09.2013, safnalögum nr.141/2011 og í anda þess sem fram kom í auglýsingu um styrki úr safnasjóði.

Alls bárust sjóðnum umsóknir frá 57 aðilum.
Umsóknir um rekstrarstyrki frá viðurkenndum söfnum voru 33.

Sótt var um styrki til 145 verkefna.

Ráðið tók 114 umsóknir um verkefnastyrki til umfjöllunar. 31 umsókn var vísað frá þar sem umsækjandi eða verkefni uppfyllti ekki skilyrði í úthlutunarreglum sjóðsins.
Alls fá  83 verkefni frá 42 aðilum verkefnastyrk.
Heildarúthlutun úr safnasjóði að þessu sinni er 93.150.000 kr
Þar af 33.000.000 kr í rekstrarstyrki og 60.150.000 kr í verkefnastyrki.

Hér má sjá lista yfir úthlutun úr safnasjóði árið 2014.