Hið árlega safnatímarit Kvistur er komið út og inniheldur fjöldan af áhugaverðum greinum, rýni og viðtölum. Í þessu 13. tölublaði má finna umfjallanir um gervigreind og notkun hennar í safnastarfi þó með ólíkum hætti. Þar eru reifaðar bæði tækifæri og áskoranir sem felast í notkun gervigreindar sem söfn og safnafólk stendur frammi fyrir jafnt og aðrir. Þar er jafnframt bent á mikilvægi þess að nálgast notkun á gervigreindinni með aðgát og heiðarleika svo hún geti stutt við safnastarf og rannsóknir með ábyrgum og faglegum hætti. Ennfremur eru greinar sem fjalla um ólík verkefni úr safnastarfinu og spanna breitt svið viðfangsefna safna, allt frá miðlun á hefðbundnu íslensku byggingarhandverki og endurbyggingu torfhúsa til rannsókna á starfi ljósmæðra þar sem mörk milli vísinda og þjóðtrúar eru rýnd. Þá er líka viðtal við nýjan forstöðumann Náttúruminjasafns Íslands, Ragnhildi Guðmundsdóttur og verkefnin sem framundan eru, þar ber hæst opnun nýs safnahúss og grunnsýningu á komandi árum.
Ritstjóri blaðsins er Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir og í ritstjórn sitja Birna María Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Hannesardóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson og Þorgerður Þorleifsdóttir. Hægt er að kaupa Kvist með því að hafa samband við ritstjórn.
FÍSOS er útgefandi Kvists en hægt er að skoða eldri eintök hér.