Opið fyrir umsóknir í aukaúthlutun 2026

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00, þriðjudaginn 17. nóvember 2026

Safnaráð minnir á, að opið er fyrir umsóknir í aukaúthlutun safnasjóðs 2026. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00, þriðjudaginn 17. nóvember 2026. Í aukaúthlutun safnasjóðs árið 2026 geta viðurkennd söfn sótt um styrki til símenntunar eða til stafrænna kynningarmála. Vakin er athygli á að hver styrkur og umsókn geta verið að hámarki 400.000 kr. NEMA fyrir flokk e) Námskeið/fyrirlesarar – samstarfsverkefni, en þar er hámark 600.000 kr. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.  Allar umsóknir má finna á umsóknarvef safnaráðs.

UPPLÝSINGAR

Eftirtaldir styrkflokkar eru í boði:

a) Styrkur til stafrænna kynningarmála
  • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk a) Styrkur til stafrænna kynningarmála og hlotið mest einn styrk.
  • Tilgangur með þessum styrkjum er að efla stafræna kynningu safnanna, hvort sem það er á samfélagsmiðlum eða á eigin heimasíðum.
  • Lögð er áhersla á að styrkurinn efli safnið sem viðkomustað fyrir gesti eða kynni starfsemi safnsins.
  • Hægt er að sækja um styrki t.d. til að gera efni til birtingar (e. content), til að kosta birtingu, til að fá utanaðkomandi þjónustu til að efla kynningu á samfélagsmiðlum eða heimasíðum eða til kynningar á starfsemi safnsins svo fátt eitt sé nefnt.
  • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 400.000 krónur.
b) Símenntun fyrir starfsmenn safns
  • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk b) Símenntun fyrir starfsmenn safns og hlotið mest einn styrk.
  • Símenntunarstyrk fyrir starfsmenn safns má nota t.d. til að sækja námskeið eða ráðstefnur hérlendis eða erlendis.
  • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 400.000 krónur.
c) Vistaskipti milli safna
  • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk c) Vistaskipti milli safna og hlotið mest einn styrk.
  • Vistaskipti milli safna er ætlaður til jafningjafræðslu starfsmanna safna og skal nýtast sem ferða- og uppihaldsstyrkur.
  • Taka skal fram hvaða safn verði heimsótt og hvað skal fræðast um.
  • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 400.000 krónur.
d) Námskeið/fyrirlesarar – Söfn sækja ein um
  • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrk í flokk d) Námskeið/fyrirlesarar og hlotið mest einn styrk.
  • Hvert safn getur að hámarki hlotið einn styrk í þessum flokki.
  • Þessi flokkur styrks er ætlaður sem styrkveiting til safnsins til að halda námskeið/málþing/ráðstefnur eða fá til sín fyrirlestra innanlands sem gæti nýst safninu sem heild sem og stærri hóp safnamanna.
  • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 400.000 krónur.​​​​​​​
e) Námskeið/fyrirlesarar – Samstarfsverkefni viðurkenndra safna
  • Viðurkennd söfn geta sótt um í samstarfi um styrk í flokk e) Námskeið/fyrirlesarar – samstarfsverkefni. Er samstarfið þá á milli a.m.k. tveggja viðurkenndra safna, einnig geta fleiri aðilar verið þátttakendur í þessum styrkumsóknum.
  • Þessi flokkur styrks er ætlaður sem styrkveiting til safnsins til að halda námskeið/málþing/ráðstefnur eða fá til sín fyrirlestra innanlands sem gæti nýst safninu sem heild sem og stærri hóp safnamanna.
  • Hvert safn getur verið aðili að fleiri en einni umsókn.
  • Ef söfn sækja um í samstarfi, getur hver styrkur og umsókn verið að hámarki 600.000 krónur.
​​​​Almennt
  • Styrkir úr seinni aukaúthlutun flokkast undir verkefnastyrki með áherslu (sjá 3. gr. Úthlutunarreglna safnasjóðs).
  • Úthlutað verður úr sjóðnum fyrir árslok 2026.
  • Styrki úr seinni aukaúthlutun 2026 skal nýta fyrir árslok 2027, ekki verður gefin frekari frestur á nýtingu styrkja úr aukaúthlutun 2026 – skilafrestur á nýtingaskýrslu er miðvikudagurinn 1. mars 2028.
  • Vakin er athygli á því að ekki er hægt að sækja um styrki fyrir verkefnum sem þegar er lokið.
  • Ekki er tekið á móti umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur.