Protecting what matters -Hanaholmen Heritage 2026
Nýútomin skýrsla, Protecting What Matters – Hanaholmen Heritage 2026, fjallar um viðbúnað og verndun menningararfs á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum í ljósi vaxandi ógna.
Skýrslan var unnin í kjölfar umfangsmikils samráðs sérfræðinga á fyrri hluta árs 2026 undir yfirskriftinni Hanaholmen Heritage, sem lauk með ráðstefnu þann 28. maí síðastliðinn, hægt er að horfa á ráðstefnuna hér. Í skýrslunni koma fram tillögur vinnuhóps sem byggja á niðurstöðum vinnulota verkefnisins. Niðurstöðurnar hafa þegar verið sendar Norrænu ráðherranefndinni ásamt menningarmálaráðuneytinu, en skýrsluna má sækja hér.
Helsta umfjöllunarefni
Meginhersla er lögð á aukið samstarf þjóðanna við verndun menningararfs og gerð viðbragðsáætlana gagnvart hernaðar- og fjölþáttaógnum (e. hybrid threats) sem og loftslagsbreytingum. Innrás Rússlands í Úkraínu og markvissar árásir á menningarverðmæti þar hafa verið áberandi í umræðunni og mikilvæg áminning um að samþætta verði vernd menningararfs betur inn í viðbragðsáætlanir og þjóðaröryggismál ríkja. Þá er lögð áhersla á að efla tengslanet milli ríkja, auka skilning á viðbragðskerfum nágrannaþjóða og dýpka þekkingu á þeim hættum sem steðja að menningarminjum.
Helstu niðurstöður og tillögur
Skýrslan tekur saman niðurstöður úr vinnulotum vinnuhópsins og setur fram fimm megintilmæli um hvernig megi standa að verdun menningarminja og aukið samstarf ríkjanna:
- Menningararfur sem mikilvægir innviðir (e. Critical Infrastructure): Menningararfur er hluti af mikilvægum innviðum samfélaga og eflir viðnámsþrótt og seiglu. Eyðilegging menningarminja veikir lýðræðisleg samfélög og eykur hættu á sögufölsun. Verndun þeirra á því að vera hluti af heildarviðbragðsáætlunum og þjóðaröryggi ríkja.
- Þróun og efling Norrænu-Eystrasaltsyfirlýsingarinnar: Norræna ráðherranefndin ætti að uppfæra og þróa samstarfsviljayfirlýsingu ríkjanna frá árinu 2024. Yfirlýsingin er stefnumótandi og góður pólitískur grunnur, en hana þarf að útvíkka og gera hana aðgerðarmiðaðri. Það má t.d. gera með skýrari ferlum í viðbragðs- og björgunaráætlunum, auknu samstarfi í neyðarástandi, aukinni stafrænni tækni og sameiginlegum viðbragðsæfingum.
- Stofnun samstarfshóps um hættuástand (e. Cultural Heritage Crisis Cooperation): Mælt er með að Baltic Region Heritage Committee komi á fót föstum vinnuhópi fulltrúa viðkomandi ráðuneyta og stofnana. Hópurinn myndi samræma viðbragðs- og samskiptaleiðir, neyðarrýmingar og millilandaaðstoð ef til átaka eða hættuástands kemur.
- Aukin stafvæðing menningararfs: Stórauka þarf stafvæðingu og 3D-skönnun menningarminja ásamt því að koma upp sameiginlegri skýjaþjónustu fyrir svæðið til að tryggja að gögn glatist ekki og til að spyrna gegn upplýsingaóreiðu.
- Sameiginlegar æfingar og þjálfun: Mikilvægur þáttur í gerð viðbragðsáætlana er að prófa þær í framkvæmd. Efla ætti samstarf um æfingar sem líkja eftir raunverulegum aðstæðum, en það bætir samhæfingu milli stofnana og yfirvalda ásamt því að afhjúpa mögulega veikleika eða óljósa ábyrgðarskiptingu.
Hér má lesa skýrsluna í heild