Framkvæmdastjóri safnaráðs í kynnisferð um söfn Fjarðabyggðar

Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs, heimsótti Fjarðabyggð þriðjudaginn 1. september síðastliðinn. Tilgangur ferðarinnar var að funda og halda erindi fyrir stjórn Menningarstofu Fjarðarbyggðar, auk þess að kynna sér fjölbreytta starfsemi safna í sveitarfélaginu og þær umfangsmiklu umbætur sem nú standa yfir á aðstöðu þeirra.

Fjölbreytt söfn og varðveislurými skoðuð

Ásamt starfsfólki Menningarstofu Fjarðabyggðar ferðaðist Þóra um sveitarfélagið og kynnti sér starfsemina á staðnum. Hún kynnti sér meðal annars uppbyggingu nýs Stríðsárasafns á Reyðarfirði, heimsótti Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði og skoðaði varðveisluhúsnæði þess. Þá var Safnahúsið í Neskaupstað einnig sótt heim þar sem farið var yfir aðbúnað í geymslum og varðveislurýmum.

Fundað um starfsumhverfi og viðurkenningar safna

Dagskráin var þétt skipuð en Þóra átti fund með starfsfólki Menningarstofu um morguninn og stjórn stofnunarinnar síðdegis. Á fundunum reifaði hún starfsemi safnaráðs, fór yfir starfsumhverfi íslenskra safna og ræddi mikilvægi þess að söfn hljóti opinbera viðurkenningu.

Umfangsmikil uppbygging í nánu samráði

Menningarstofa Fjarðabyggðar vinnur nú að metnaðarfullum umbótum á safnastarfi sveitarfélagsins. Stofnanirnar hafa meðal annars hlotið öndvegisstyrk úr Safnasjóði, auk annarra verkefnastyrkja, sem ætlaðir eru til að efla safnastarf og tryggja varðveislu safngripa til framtíðar.

Verkefnin eru unnin í nánu samstarfi við safnaráð og önnur söfn á landinu. Heimsóknin var því kærkomið tækifæri til að fara yfir stöðuna, meta árangurinn og ræða næstu skref í uppbyggingu safnastarfs í Fjarðabyggð.