„Changing tactics, changing targets: the evolving nature of museum heists“ er heiti á nýútgefinni skýrslu Europol, þar er dregin upp dökk mynd af breyttum aðferðum og vaxandi ógn er varðar þjófnað á safngripum. Í skýrslunni er vakin athygli á því að rán á söfnum verði sífellt fólskulegri og ofbeldisfyllri, þar sem skipulagðir glæpahópar beiti aukinni hörku.
Gerendur beina í auknum mæli sjónum sínum að verðmætum safngripum, svo sem góðmálmum, gimsteinum og öðrum menningarverðmætum. Þá kemur einnig fram að ný glæpanet tengist þjófnaði á safngripum og menningarverðmætum sem bendir til aukinnar eftirspurnar á svörtum markaði m.a. vegna þess hve auðvelt sé að koma stolnum munum í ólöglega endursölu.
Europol hefur jafnframt tilkynnt að sérstök miðstöð stofnunarinnar gegn alvarlegri og skipulagðri glæpastarfsemi eða European Serious and Organised Crime Centre (ESOCC) muni styðja aðildarríki ESB og samstarfsaðila í baráttunni gegn ólöglegum viðskiptum með menningarverðmæti.
Hér má nálgast skýrsluna í heild.
