Safnaráð hélt 255 safnaráðsfund sinn í Grasagarði Reykjavíkur þann 27. maí. Grasagarður Reykjavíkur er viðurkennt safn í eigu Reykjavíkurborgar og eina viðurkennda safnið á Íslandi sem er grasagarður – lifandi safn undir berum himni. Hjörtur Þorbjörnsson safnstjóri tók á móti ráðinu og sagði frá sögu garðsins og þróun hans í gegnum árin. Einnig fjallaði hann um stærstu verkefni og rannsóknir sem safnið og starfsfólk þess tekur þátt í.

Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 og hefur stækkað umtalsvert frá stofnun hans og er í dag 5 ha að stærð og er staðsettur í Laugardal við hliðina á Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Hans helsta hlutverk er að varðveita og skrá plöntur til fræðslu, rannsókna og yndisauka. En grasagarðar eru einstakir fyrir þær sakir að meiri hluti safnskostsins er lifandi en í honum eru átta safndeildir með 5000 plöntum. Þær eru: Flóra Íslands, fjölærar jurtir, rósir, lyngrósir, skógarbotnsplöntur, trjásafn, steinhæð og nytjajurtagarður. Heildarfjöldi tegunda, undirtegunda, afbrigði og yrkja í garðinum er rúmlega 3500. Safnið tekur á móti skóla, vinnustaða- og félagahópum allan ársinshring og heldur utan um fjölmarga árstíðabundna viðburði opnir almenningi. Ólíkt öðrum söfnum þá er hann opin allt árið um kring.