Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026
Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og ríkti mikil gleði meðal safnafólks sem fjölmennti á viðburðinn og fagnaði blómlegri starfsemi safna á Íslandi.
Verðlaunin að þessu sinni hlaut Listasafn Íslands fyrir viðspyrnu gegn málverkafölsun en í umsögn valnefndar segir meðal annars:
„Sýningin Ráðgátan um Rauðmagann og aðrar sögur um eftirlíkingar og falsanir er einstakt og tímabært framlag til íslensks safnastarfs þar sem fræðileg rannsókn, fagleg ábyrgð og hugvitsamleg miðlun sameinast, í þágu almennings. Með því að sýna fölsuð og ófölsuð verk hlið við hlið, opna rannsóknargögn og gera flókið viðfangsefni aðgengilegt tókst með sýningunni að varpa ljósi á viðkvæmt en brýnt málefni á ábyrgan hátt.
[…]
Almenn þekking á íslenskri listasögu er mikilvæg viðspyrna gegn fölsunum og þar hefur Listasafn Íslands lagt sitt lóð á vogarskálarnar með metnaðarfullri og djarfri umfjöllun um viðkvæma þætti innan íslenskrar listasögu sem hafa hingað til ekki hlotið faglega og ítarlega framsetningu og umfjöllun sem þessa.“
Þau söfn sem hlutu einnig tilnefningu til verðlaunanna voru Borgarsögusafn fyrir verkefni á sviði inngildingar og öflug tengsl við samfélagið, Minjasafn Austurlands fyrir verkefnið Kjarval á Austurlandi, Stofnun Árna Magnússonar fyrir sýninguna Heimur í orðum og Tækniminjasafn Austurlands fyrir uppbyggingu og endurreisn.
Í valnefnd sátu Birta Guðjónsdóttir, Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir, Hjörtur Þorbjörnsson og Hörður Geirsson. Alma Sigurðardóttir var formaður nefndarinnar.