Aðalúthlutun 2026

Menningarráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnasjóðs 2026

Úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026 þann 22. janúar 2026 voru veittar 182.700.000 krónur.

Styrkir til eins árs  voru 123 talsins að heildarupphæð 154.700.000 kr. til 51 styrkþega.

Öndvegisstyrkir 2026-2028 til viðurkenndra safna voru átta og skiptast svo:  28.000.000 kr. fyrir árið 2026, 29.000.000 kr. fyrir árið 2027 og 16.000.000 kr. fyrir árið 2028. Heildarupphæð Öndvegisstyrkja 2026 fyrir öll styrkárin 2026 – 2028 er þá 73.000.000 kr. Úthlutanir fyrir árin 2027 og 2028 eru veittar með fyrirvara um fjármögnun sjóðsins.

Eldri Öndvegisúthlutanir fyrir árið 2026 voru 10 talsins og styrkupphæð fyrir árið er 41.900.000 kr.

Í aðalúthlutun safnasjóðs 2026 bárust sjóðnum alls 169 umsóknir, 156 umsóknir til eins árs að heildarupphæð 335.139.615 kr. og 11 Öndvegisumsóknir. Umsóknarupphæð Öndvegisstyrkja var 50.250.630 kr. fyrir árið 2026 og fyrir allan styrktímann 2026 – 2028 var heildarumsóknarupphæð alls 127.071.480 kr.   

Styrkþegum var birt niðurstaðan 24. janúar síðastliðinn og má finna nánari útlistun á þeim hér.

Samkvæmt 7. mgr. 22. gr. safnalaga, úthlutar menningarráðherra styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs.