Farskóli FÍSOS 2025 á Selfossi

Áreiðanleiki, trúverðugleiki og sannindi í íslenskum safnaheimi!

Hin árlega fagráðstefna safnafólks Farskólinn var haldinn í 37. sinn á Hótel Selfossi dagana 1. til 3. október 2025. Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) stendur að ráðstefnunni og Farskólastjórar eiga bestu þakkir skilið fyrir fróðlegan og skemmtilegan Farskóla. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir starfsþróun, fræðslu og tengslamyndun safnafólks sem kemur úr öllum landshlutum og þátttakan var góð í ár, en 160 manns sóttu hann að þessu sinni. Þema farskólans að þessu sinni var „Áreiðanleiki, trúverðugleiki og sannindi í söfnum“ og var dagskráin þétt og fjölbreytt og samanstóð af m.a. fyrirlestrum, málstofum, ratleik og vettvangsferð um Suðurland.

Farskólinn var settur snemma á miðvikudegi og hófst á erindinu ‘Can practicing art heal society disorders by reconnecting our minds with our bodies? sem var flutt af Thomasine Giesecke, listamanni og umsjónarmanni fræðslu hjá Musée D´Orsay og Louvre söfnum í París. Hún fjallaði um árangur og mikilvægi listmeðferðar sem getur haft heilandi áhrif á ólíka hópa í samfélaginu. Þá voru einnig erindi frá fagstjóra Sarps, sem bar titilinn Nýr Sarpur: Staðan núna, þar sem Vala Gunnarsdóttir fór yfir stöðu mála á nýjum Sarpi. En nú fer að sjá fyrir endanum á þeirri vinnu og nýr Sarpur lítur vonandi dagsins ljós á næstu mánuðum og mun án efa bæta skráningarmál safngripa til muna. Rekstrarfélagið Sarpur hefur verið í þróunarsamvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Zetcom um nýjan Sarp og Marcell Zemp, stofnandi og forstjóri Zetcom, sagði frá samstarfinu og fyrirtækinu sem sérhæfir sig í að þróa hugbúnaðarlausnir og þjónustu fyrir söfn, safneignir og skjalasöfn fyrirtækja og stofnanna.

 

Myndir tók Hörður Geirsson, ljósmyndari og safnvörður ljósmyndadeildar hjá Minjasafninu á Akureyri.

Aðalfundur FÍSOS haldinn yfir léttum hádegisverði og í lok fundarins var ánægjulegt að klappa fyrir nýjum heiðursfélögum FÍSOS þeim Elínu S. Sigurðardóttur, Frosta F. Jóhannessyni, Guðmundi Ólafssyni og Ingu Jónsdóttur. Nánar um það hér. 

Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs hélt erindið: Hvar stendur þitt safn? Tölur úr safnastarfi 2016-2023. Þar fjallaði Þóra m.a. um þær upplýsingar sem Safnaráð safnar um safnastarf og hvað er gott að hafa í huga þegar rýnt er í tölfræði og hvað ber að varast, t.d. getur tölfræði verið villandi ef það skortir samhengi eða upp koma skekkjubundin úrtök og fleira fróðlegt.
Að loknum erindum fóru Farskólagestir í vettvangsferð undir leiðsögn Hannesar Stefánssonar, en heimsótt voru Listasafn Árnesinga, Byggðasafn Árnesinga og að lokum Hersafnið á Selfossflugvelli í þessari ágætu hringferð um Suðurlandið. Dagurinn endaði svo með venjubundnu pub quiz.

Bergur Ebbi opnaði fimmtudaginn fyrir okkur með erindi um söfn, sjálfsmynd og samvisku áður en fjölbreyttar málstofur á vegum safnafólks hófust. Haldnar voru 15 málstofur, í þeim var m.a fjallað um varðveislu, sýningar, framtíð torfbæja, ferðaþjónustu, safnfræðslu, listmeðferð, sjónlýsingu fyrir blinda og sjónskerta og náttúru.  Nánar má lesa um málstofurnar hér.

Safnaráð í samstarfi við Námsbraut í safnafræði og FÍSOS stóðu að málstofu um Safnastarf í ferðaþjónustu – Hvernig mætti styrkja stöðu safna í ferðaþjónusturnni? Mikil þátttaka var á málstofunni og augljóst að safnafólk er áhugasamt um málefnið. Málstofan var sett upp sem einskonar hugarflugsfundur þar sem umsjónarmenn virkjuðu umræðuna með hópavinnu í formi hraðstefnumóta og svo ítarlegri umræðna um hvernig söfn geta stigið öruggari inn í ferðaþjónustuna. 

Dagurinn var svo brotinn upp með ratleik um Selfoss og stórskemmtileg árshátíð félagsins fór svo fram á Hótel Selfossi þar sem gestir skemmtu sér vel.

Á síðasta deginum var umræða um nýja miðbæ Selfoss, sem var skírskotun í þema Farskólans. Þar héldu Sigurður Einarsson arkitekt nýja miðbæjarins erindi um hann og í kjölfarið hélt Vilhelmína Jónadóttir, þjóðfræðingur og sérfræðingur í menningaráðuneytinu, erindið; Um aðdráttarafl og fortíðleika í nýjum miðbæ Selfoss og að lokum sátu þau svo undir svörum Farskólagesta.

Farskólinn er haldinn af Félagi íslenskra safna og safnafólks með stuðningi Safnaráðs og með þátttökugjöldum. Í farskólastjórn voru Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga, sem var farskólastjóri, Sigurlaugur Ingólfsson, Borgarsögusafni, Helga Aradóttir, Náttúruminjasafni Íslands og Kristín Scheving, Listasafni Árnesinga. Með farskólastjórn starfaði einnig Dagrún Ósk Jónsdóttir starfsmaður FÍSOS.

Farskóla var slitið í Tryggvaskála undir rödd brottflutta Selfyssingins.