
Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins 2025 fer fram málþing miðvikudaginn 21. maí í fyrirlestrasal Þjóðminjasafn Íslands. Í heimi sem er á sífelldri hreyfingu og átök verða sífellt meira áberandi býður þema safnadagsins í ár, Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum, okkur að huga að hlutverki og umhverfi safna í þessu tilliti.
Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og Safnaráð bjóða til málþingsins en þar verður meðal annars fjallað um söfn í samhengi við hið samfélagslega rof, framtíðarhorfur þeirra og möguleika á að hafa áhrif. Hvaða merkingu hafa söfn þegar samfélagið er klofið og pólarísering/skautun eykst? Hvaða ábyrgð bera menningarstofnanir gagnvart almenningi sem tengslamyndandi þekkingarmiðstöðvar og samfélagskjarnar? Hvernig mótast söfn af umhverfi sínu, auk utanaðkomandi þrýstings og krafna um afstöðuleysi? Hér má finna Facebook viðburðinn
Á málþinginu var fjallað um söfn og hið samfélagslega rof, framtíðarhorfur og möguleika þeirra til að hafa áhrif.
Hér má finna upptöku af málþinginu
Dagskrá málþingsins:

13:00-13:05 – Hlynur Hallsson, fundarstjóri – Setning málþings
13:05-13:20 – Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM – Ávarp: „Að takast á við rofið“
13:20-13:45 – Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði við Háskóla Íslands – „Safnið sem átakavettvangur“
13:45-14:10 – Dr. Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði við Háskóla Íslands – „Eru íslensk söfn hrædd við víkinga? Víkingar sem menningararfur eða söluvarningur ferðaþjónustunnar“
14:10-14:30 – Kaffihlé
14:30-14:55 – David Anderson, prófessor við Cardiff University – „Frá ráðstefnu American Alliance of Museums“
14:55-15:20 – Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78 – „Menningarstríð og minnihlutahópar“
15:20-16:15 – Pallborðsumræður
16:15-17:00 – Málþingi slitið og boðið upp á léttar veitingar
Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Framkvæmd dagsins er mikilvægt samstarfsverkefni Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS, sem nýtur öflugs stuðnings frá safnaráði og söfnunum í landinu.