Opið fyrir umsóknir í aukaúthlutun 2024

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00, 25. nóvember 2024

Safnaráð minnir á, að opið er fyrir umsóknir í aukaúthlutun safnasjóðs 2024. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00, mánudaginn 25. nóvember 2024.

Í aukaúthlutun safnasjóðs árið 2024 geta viðurkennd söfn sótt um styrki til símenntunar eða til stafrænna kynningarmála. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina.  Hér má finna umsóknareyðublað.

UPPLÝSINGAR

Eftirtaldir styrkflokkar eru í boði:

a) Styrkur til stafrænna kynningarmála

    • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk a) Styrkur til stafrænna kynningarmála og hlotið mest einn styrk.
    • Tilgangur með þessum styrkjum er að efla stafræna kynningu safnanna, hvort sem það er á samfélagsmiðlum eða á eigin heimasíðum.
    • Lögð er áhersla á að styrkurinn efli safnið sem viðkomustað fyrir gesti eða kynni starfsemi safnsins.
    • Hægt er að sækja um styrki t.d. til að gera efni til birtingar (e. content), til að kosta birtingu, til að fá utanaðkomandi þjónustu til að efla kynningu á samfélagsmiðlum eða heimasíðum eða til kynningar á starfsemi safnsins svo fátt eitt sé nefnt
    • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.

b) Símenntun fyrir starfsmenn safns

    • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk b) Símenntun fyrir starfsmenn safns og hlotið mest einn styrk.
    • Símenntunarstyrk fyrir starfsmenn safns má nota t.d. til að sækja námskeið eða ráðstefnur hérlendis eða erlendis.
    • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.

c) Vistaskipti milli safna

    • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk c) Vistaskipti milli safna og hlotið mest einn styrk.
    • Vistaskipti milli safna er ætlaður til jafningjafræðslu starfsmanna safna og skal nýtast í ferða- og uppihaldsstyrk.
    • Taka skal fram hvaða safn verði heimsótt og hvað skal fræðast um.
    • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.

d) Námskeið/fyrirlesarar – Söfn sækja ein um

    • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrk í flokk d) Námskeið/fyrirlesarar og hlotið mest einn styrk.
    • Hvert safn getur að hámarki hlotið einn styrk í þessum flokki.
    • Þessi flokkur styrks er ætlaður sem styrkveiting til safnsins til að halda námskeið/málþing/ráðstefnur eða fá til sín fyrirlestra innanlands sem gæti nýst safninu sem heild sem og stærri hóp safnamanna.
    • Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.​​​​​​​

e) Námskeið/fyrirlesarar – Samstarfsverkefni viðurkenndra safna

    • Viðurkennd söfn geta sótt um í samstarfi um styrk í flokk e) Námskeið/fyrirlesarar – samstarfsverkefni. Er samstarfið þá á milli a.m.k. tveggja viðurkenndra safna, einnig geta fleiri aðilar verið þátttakendur í þessum styrkumsóknum.
    • Þessi flokkur styrks er ætlaður sem styrkveiting til safnsins til að halda námskeið/málþing/ráðstefnur eða fá til sín fyrirlestra innanlands sem gæti nýst safninu sem heild sem og stærri hóp safnamanna.
    • Hvert safn getur verið aðili að fleiri en einni umsókn.
    • Ef söfn sækja um í samstarfi, getur hver styrkur og umsókn verið að hámarki 600.000 krónur.

​​​​​​​

Almennt

    • Styrkir úr seinni aukaúthlutun flokkast undir verkefnastyrki með áherslu (sjá 3. gr. Úthlutunarreglna safnasjóðs).
    • Úthlutað verður úr sjóðnum fyrir árslok 2024.
    • Styrki úr seinni aukaúthlutun 2024 skal nýta fyrir árslok 2025, ekki verður gefin frekari frestur á nýtingu styrkja úr aukaúthlutun 2024 – skilafrestur á nýtingaskýrslu er 2. mars 2026.
    • Vakin er athygli á því að ekki er hægt að sækja um styrki fyrir verkefnum sem þegar er lokið.
    • Ekki er tekið á móti umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur.