Kvistur 2024

Safnablaðið Kvistur er komið út

Safnablaðið Kvistur er komið út og fagnar um leið 10 ára stórafmæli en fyrsta Kvist blaðið kom út árið 2014. Blaðið er mikilvægur hluti af safnastarfi í landinu og styrkir fagsvið safna en jafnframt veitir það fólki innsýn í marlaga hliðar safnastarfsins.

Efnistökin eru líkt og undanfarin ár fjölbreytt og er þar að finna áhugaverðar greinar þar sem má meðal annars fá innsýn inn í störf safnafólks, greinar sem byggja á lokaverkefnum nemenda í safnafræði, sýningarýni og frásagnir af ólíkum verkefnum safnafólks. Sérstök áhersla er einnig lögð á viðbragðsáætlarnagerð safna vegna hamfara eða annarskonar vá.

Ritstjóri blaðsins er Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir og í ritstjórn sitja Birna María Ásgeirsdóttir, Sigurjón Baldur Hafsteinsson, Þóra Sigurbjörnsdóttir og Þorgerður Þorleifsdóttir. Hægt er að kaupa Kvist í Bóksölu stúdenta, eða með því að hafa samband við ritstjórn.

FÍSOS gefur út safnablaðsins Kvists og hægt er að skoða eintök eldri en eins árs hér.