Frumvarp til laga um breytingu á safnalögum hefur nú verið samþykkt á Alþingi. Þar er kveðið á um samræmdan skipunartíma forstöðumanna höfuðsafna og að safnaráð, sem hefur eftirlit með safnastarfi í landinu, boði árlega til samráðsfundar með ráðherra og fulltrúum höfuðsafna og þeirra fagfélaga sem koma að starfi safnanna.
Ein af helsta breytingin á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands, er samræmdur skipunartími forstöðumanna höfuðsafna þá geta forstöðumenn hér eftir verið skipaðir í embætti tvisvar og því mest gegnt embætti í 10 ár. Í myndlistarlögum, nr. 64/2012, kemur nú fram að aðeins má endurnýja skipun forstöðumanns Listasafns Íslands einu sinni, þá til næstu fimm ára. Þá er þessi breyting í samræmi við skipunartíma hjá t.d. forstöðumanni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og þjóðleikhússtjóra.
Frumvarp menningar- og viðskiptaráðherra var lagt fram í samráði við safnafólk eftir fundi haustið 2022. Fundina sátu, auk starfsliðs ráðuneytisins, fulltrúar Félags fornleifafræðinga, Félags íslenskra safna og safnmanna (FÍSOS), Félags þjóðfræðinga á Íslandi, Íslandsdeildar Alþjóðaráðs safna (ICOM, International Council of Museums) og Sagnfræðingafélags Íslands.