Ný reglugerð tekur gildi 29. janúar

Hámarksfjöldi í söfnum nú 100 manns í hverju sóttvarnarými að hámarki 500 manns

Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 29. janúar og gildir til og með 24. febrúar

Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir

  • Söfn mega taka á móti 100 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum.
  • Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m²  má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Athugið að þetta á við hefðbundna starfsemi safnsins, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
  • Eins metra fjarlægðarregla er í gildi.
  • Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.

Almennar reglur eru:

  • Almennar fjöldatakmarkanir eru 50 manns.
  • Fjarlægðarregla er 1 metri.
  • Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af fjarlægðarreglu.

Söfn þurfa einnig að:

  • Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
  • Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
  • Minna almenning og starfsmenn  á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum

Frétt á vef stjórnarráðsins

Ný reglugerð