Ný reglugerð tekur gildi 15. janúar

Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar er í gildi frá og með 15. janúar og gildir til 2. febrúar 2022.

Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir

  • Söfn mega taka á móti 50 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum.
  • Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m²  má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 200 manns. Athugið að þetta á við hefðbundna starfsemi safnsins, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
  • 2ja metra fjarlægðarregla er í gildi.
  • Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda 2ja metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.
  • Almennar fjöldatakmarkanir eru 10 manns.

Söfn þurfa einnig að:

  • Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
  • Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
  • Minna almenning og starfsmenn  á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.

Frétt af vef Stjórnarráðsins
Tengill á nýja reglugerð
Upplýsingar um gildandi takmarkanir á vef covid.is