Ný reglugerð – hertar sóttvarnarreglur sem gilda til 2. febrúar 2022.

Gildir frá og með 23. desember til 12. janúar 2022. Framlengt til 2. febrúar.

(Uppfært 11. janúar 2022 og 14. janúar)

Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar er í gildi frá og með 23. desember og gildir til 12. janúar 2022 og var framlengd til 14. janúar.

Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir

  • Söfn mega taka á móti 50 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum.
  • Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m²  má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Athugið að þetta á einungis við hefðbundna starfsemi safnsis, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
  • 2ja metra fjarlægðarregla er í gildi.
  • Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda 2ja metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.

Söfn þurfa einnig að:

  • Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
  • Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
  • Minna almenning og starfsmenn  á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum

Tengill á frétt á vef stjórnarráðsins er hér

Tengill á reglugerð 1484/2021 er hér (í gildi til 12. janúar 2022)

Upplýsingar um gildandi takmarkanir á covid.is