(Uppfært 11. janúar 2022 og 14. janúar)
Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar er í gildi frá og með 23. desember og gildir til 12. janúar 2022 og var framlengd til 14. janúar.
Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir
- Söfn mega taka á móti 50 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum.
- Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Athugið að þetta á einungis við hefðbundna starfsemi safnsis, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
- 2ja metra fjarlægðarregla er í gildi.
- Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda 2ja metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.
Söfn þurfa einnig að:
- Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
- Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
- Minna almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum
Tengill á frétt á vef stjórnarráðsins er hér
Tengill á reglugerð 1484/2021 er hér (í gildi til 12. janúar 2022)