Aukaúthlutun úr safnasjóði 2021

Alls var úthlutað rúmum 220 milljónum úr safnasjóði árið 2021

Í desember 2021 úthlutaði menningarmálaráðherra, að fenginni umsögn safnaráðs, 17.390.000 kr. úr aukaúthlutun safnasjóðs 2021.

Úr aukaúthlutun 2021 var 58 styrkjum úthlutað til 32 viðurkenndra safna, 23 styrkir eru til stafrænna kynningarmála safnanna og 35 styrkir eru til símenntunarverkefna og námskeiðahalds.

Heildarúthlutun ársins 2021 úr safnasjóði er því 220.630.000 kr., næsthæsta úthlutun sjóðsins frá upphafi og eru styrkirnir alls 197 talsins.

Úr aðalúthlutun safnasjóðs 2021 í mars voru veittar 168.540.000 kr., þar af var 30.600.000 kr. veitt í Öndvegisstyrki. Öndvegisstyrkir 2020-2022 fyrir árið 2021 voru 34.700.000 kr.

Lista yfir alla styrki og styrkþega safnasjóðs árið 2021 má finna hér.