Umsókn um viðurkenningu safns samkvæmt safnalögum

Opið fyrir umsóknir til 15.september 2021

Safnaráð minnir á að síðasti skiladagur umsókna um viðurkenningu samkvæmt safnalögum nr. 141/2011, til að umsóknin verði afgreidd áður en umsóknarfrestur í safnasjóð fyrir árið 2022 rennur út, er 15.  september 2021.

Umsóknareyðublað vegna viðurkenningar safns má finna hér, eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókninni: 

  • Staðfesting frá eiganda og/eða stjórn safns um að óskað er eftir viðurkenningu.
  • Afrit af ársreikningi ársins 2020.
  • Afrit af gildandi stefnumörkun.
  • Afrit af söfnunarstefnu.
  • Afrit af neyðaráætlunum.
  • Afrit af síðustu úttekt eldvarnareftirlits.
  • Afrit af starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti.
  • Afrit af síðustu úttekt á öryggiskerfum.
  • Afrit af staðfestingu um trygg fjárframlög næstu fimm ára sem tryggja grunnrekstur safnsins.
  • Afrit af rekstraráætlun næstu fimm ára.
  • Yfirlitsskýrsla umsækjanda um viðurkenningu, fyllt út á umsóknavef safnaráðs.
  • Einnig þarf stofnskrá/samþykktir safnsins að uppfylla skilmála safnaráðs.

Frekari upplýsingar um viðurkenningu safna er að finna hér.

Umsækjendur eru minntir á að vista sniðmátið áður en fyllt er inn í það svo engar upplýsingar glatist.

Nánari upplýsingar fást á hjá framkvæmdastjóra safnaráðs í síma 820-5450.

Tekið er við rafrænum umsóknum í tölvupósti á netfangið safnarad@safnarad.is
Einnig má senda viðbótargögn ef við á í pósti á:

Safnaráð
Gimli, Lækjargötu 3
101 Reykjavík