Nýjar reglur – 20 manna fjöldatakmarkanir gilda á söfnum frá 5. október

Nýjar reglur varðandi samkomutakmarkanir gilda á söfnum frá og með mánudeginum 5. október.

  • Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými er 20 einstaklingar.
  • Tryggja skal að blöndun einstaklinga verði ekki á milli hólfa, hvorki í inngangi/útgangi, salernisaðstöðu, veitingasölu eða annarri þjónustu og að fyllstu sóttvarnaráðstafana sé gætt.
  • Nálægðartakmörk er áfram einn metri á milli ótengdra aðila.
  • Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk er skylt að andlitsgríma verði notuð.
  • Börn fædd 2005 og síðar teljast ekki með í hámarksfjölda.

Einnig má geta þess að lýst hefur verið neyðarstigi á landinu vegna COVID-19.

Sjá nánar tilkynningu á vef Stjórnarráðsins: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/10/03/COVID-19-Hertar-samkomutakmarkanir-taka-gildi-5.-oktober/ 

Hér má finna leiðbeiningar frá Landlækni fyrir rekstraraðila varðandi COVID-19.