- Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými er 20 einstaklingar.
- Tryggja skal að blöndun einstaklinga verði ekki á milli hólfa, hvorki í inngangi/útgangi, salernisaðstöðu, veitingasölu eða annarri þjónustu og að fyllstu sóttvarnaráðstafana sé gætt.
- Nálægðartakmörk verða tveir metrar á milli ótengdra aðila.
- Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk er skylt að andlitsgríma verði notuð.
- Börn fædd 2005 og síðar teljast ekki með í hámarksfjölda.
- Hvatt er til fjarvinnu þar sem því verður við komið.
Breytingin sem hefur orðið, er að nálægðartakmörk verður 2 metrar, sjá nánar hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/10/06/COVID-19-Hertar-sottvarnaadgerdir-a-hofudborgarsvaedinu/
Tilkynning um reglur sem gilda utan höfuðborgarsvæðisins er hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/10/03/COVID-19-Hertar-samkomutakmarkanir-taka-gildi-5.-oktober/
Hér má finna leiðbeiningar frá Landlækni fyrir rekstraraðila varðandi COVID-19.
_________
1) Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog.