Hvað er safn? Nýja safnaskilgreiningin

Fundur í Sjóminjasafninu miðvikudaginn 4. mars, 9.30 - 12.00

ICOM, FÍSOS og safnaráð boða til almenns fundar miðvikudaginn 4. mars kl. 9.30 í Sjóminjasafninu í Reykjavík, þar sem til umfjöllunar verður hin nýja safnaskilgreining ICOM.

Hin nýja safnaskilgreining var kynnt á aðalfundi Alþjóðaráðs safna sem haldinn var í Kyoto í september 2019. Niðurstaða fundarins var að fresta kosningu um skilgreininguna og kalla eftir frekari ábendingum frá félagsmönnum um innhald skilgreiningarinnar.

Jette Sandahl, formaður nefndar um hina nýja safnaskilgreiningu, hefur þegið boð Íslandsdeildar ICOM, FÍSOS og safnaráðs að flytja erindi á fundinum og skýra út þá vinnu sem þegar hefur átt sér stað og hvert er markmið núverandi vinnuhóps um efnið.

Það er mikill fengur fyrir félagsmenn ICOM og FÍSOS að fá Jette til landsins og ræða um hvort og hvaða áhrif hin nýja skilgreining hefur á safnastarf á Íslandi. Einnig að koma með ábendingar og tillögur að úrbótum.

Undirbúningsnefnd fundarins hvetur alla félagsmenn og þá sem hafa áhuga á starfi safna á Íslandi til að fjölmenna á fundinn.

Fundardagskrá
kl. 9.30 – Guðný Dóra Gestsdóttir, formaður Íslandsdeildar ICOM býður fundargesti velkomna.
kl. 9.35 – Fundarstjóri – Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafns Reykjavíkur.
kl. 9.40 – Erindi – Jette Sandahl, formaður nefndar um hina nýju safnaskilgreiningu
kl. 10.10 – Pallborðsumræður – hver fulltrúi í pallborði leggur fram sína sýn á hina nýju safnaskilgreiningu.

Þátttakendur í pallborðinu:

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, doktorsnemi í safnafræði
Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri
Margrét Hallgrímsson, þjóðminjavörður
Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor, safnafræði H.Í.

Viðburðinn má finna á Facebook.