Árleg skýrsla viðurkenndra safna 2019 – opið fyrir skil

Skilafrestur er til 31. október 2019

Safnaráði er samkvæmt safnalögum nr. 141/2011 falið að hafa eftirlit með viðurkenndum söfnum sem starfa eftir skilmálum safnaráðs um starfsemi viðurkenndra safna. Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum er þríþætt og er einn hluti þess er eftirlit með rekstri safns og er það gert með yfirferð safnaráðs á Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2019 er varðar rekstrarárið 2018. Sjá nánar um eftirlit með viðurkenndum söfnum hér.

Beinn tengill á nýtt eyðublað:  https://safnarad.eydublod.is/Forms/Form/ARL-2019 

Beinn tengill á Mínar síður (eyðublöð í vinnslu og send eyðublöð) hér.

 

Upplýsingar:

  • Skil á Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2019 er í gegnum umsóknavef safnaráðs: https://safnarad.eydublod.is/Forms
  • Innskráning á umsóknavefinn er í gegnum Ísland.is
  • Hægt er að prenta skýrsluna út og fylla inn til undirbúnings
  • Beðið er um upplýsingar er varða rekstrarárið 2018
  • Viðhengi sem á fylgja að með skýrslunni er ársreikningur safnsins fyrir 2018
  • Ef safn kýs að skila ársskýrslu safnsins fyrir 2018, þá má senda hana í tölvupósti til safnarad@safnarad.is
  • Vinsamlegast skilið eyðublaði í síðasta lagi 31. október 2019
  • Athugið – eingöngu er tekið við Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2019
    í gegnum umsóknavef safnaráðs

Nánari upplýsingar má fá á vef safnaráðs: https://safnarad.is/umsoknavefur/ eða hjá Þóru Björk Ólafsdóttur framkvæmdastjóra safnaráðs, thora@safnarad.is