Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 16. nóvember 2018.
Í aðalúthlutun safnasjóðs eru veittir bæði verkefnastyrkir og rekstrarstyrkir úr safnasjóði, upphæð og fjöldi veittra styrkja ræðst af ráðstöfunarfé sjóðsins auk fjölda og gæðum umsókna.
Viðurkennd söfn geta sótt um styrki úr safnasjóði, einnig er sjóðnum er heimilt að styrkja aðra starfsemi til að efla faglegt safnastarf, m.a. rannsóknir á starfssviði sjóðsins og miðlun upplýsinga um þær.
Verkefnastyrkir: (Beinn tengill á umsóknareyðublað fyrir verkefnastyrki)
Öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til skilgreindra verkefna. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja aðra starfsemi til að efla faglegt safnastarf. Önnur söfn, safnvísar, setur og sýningar geta notið styrks úr safnasjóði til skilgreindra verkefna í samstarfi við viðurkennd söfn.
Áhersluefni* verkefnastyrkja fyrir næstu aðalúthlutun safnaráðs 2019 verða eftirfarandi:
- Börn og ungmenni
- Samstarfsverkefni, innanlands og utan
- Stafræn miðlun
Safnaráð vekur þó athygli á því að allar umsóknir sem uppfylla skilyrði úthlutunarreglna verða teknar til umsagnar safnaráðs. Umsóknir með þessum áhersluefnum þurfa að uppfylla sömu skilyrði um gæði umsókna og aðrar.
Rekstrarstyrkir: (Beinn tengill á umsóknareyðublað fyrir rekstrarstyrk)
Eingöngu viðurkennd söfn geta sótt um rekstrarstyrk til sjóðsins til að efla starfsemi sína. Viðurkennd söfn í eigu ríkisins og viðurkennd söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta sótt um verkefnastyrki.
Vakin er athygli á að samkvæmt úthlutunarreglum safnasjóðs getur viðurkennt safn sótt um rekstrarstyrk til að:
- Efla faglega starfsemi safns og treysta rekstur þess
- Styrkja nýsköpun í rekstri og starfsemi safnsins
- Styrkja rekstur safns sem sameinast hefur öðrum menningarstofnunum
- Treysta samstarf safns við félagasamtök, stofnanir og aðra aðila í gegnum samninga um varðveislu og miðlun menningararfs.
Lendgur umsóknarfrestur er til kl. 16.00 föstudaginn 16. nóvember 2018.
Umsóknum skal skila með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað á umsóknavef safnaráðs https://safnarad.is/umsoknavefur/
Áætlað er að tillögu safnaráðs verði skilað til ráðherra í kringum 10. janúar 2019.
Nánari upplýsingar má finna á vef safnaráðs eða hjá framkvæmdastjóra safnaráðs, Þóru Björk Ólafsdóttur, thora@safnarad.is, S: 534-2234
Úthlutunarreglur safnasjóðs má finna hér
Verklagsreglur vegna úthlutunar má finna hér
Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 141/2011. Í þeim tilgangi getur sjóðurinn styrkt rekstur og skilgreind verkefni viðurkenndra safna og samstarfsverkefni slíkra safna innbyrðis, sjá https://safnarad.is/ . Safnaráð veitir umsögn um styrkumsóknir úr safnasjóði. Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins frá 29. september 2015.
* Á 174. fundi safnaráðs 26. júní 2018 var samþykkt í samræmi við 2.gr. úthlutunarreglna safnasjóðs nr. 551/2016 að hafa þessi þrjú áhersluefni verkefnastyrkja fyrir næstu aðalúthlutun safnaráðs 2019.