Safnaráð auglýsir eftir umsóknum um símenntunarstyrki til viðurkenndra safna

Aukaúthlutun úr safnasjóði 2018 - umsóknarfrestur er til og með 31. október 2018

Símenntunarstyrkir fyrir viðurkennd söfn

Nú er opið fyrir umsóknir í aukaúthlutun safnasjóðs 2018.

Í aukaúthlutun safnasjóðs á síðasta ársfjórðungi geta viðurkennd söfn sótt um verkefnastyrki til símenntunar, svokallaða símenntunarstyrki. Tilgangur með þessum styrkjum er að styrkja faglegt starf safnanna og efla þátt símenntunar.

Tvenns konar styrkir eru í boði, Símenntun fyrir starfsmenn safns annars vegar og Námskeið/fyrirlesarar hins vegar. Hvert safn getur sótt um einn styrk af hvorri tegund og hámarksupphæð umsókna er 300.000 kr.

Vakin er athygli á því að ekki er hægt að sækja um styrki fyrir símenntun, námskeið eða fyrirlestra sem er búið að sækja eða er lokið þegar umsóknarfresti lýkur.

Símenntun fyrir starfsmenn safns

  • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sótt um einn verkefnastyrk af tegundinni Símenntun fyrir starfsmenn safns.
  • Símenntunarstyrk fyrir starfsmenn safns má nota til að sækja formlega menntun (til dæmis með skipulögðum námskeiðum) eða til óformlegri námsferða, svo sem heimsókn á söfn hérlendis sem erlendis, eða sem ferða- og uppihaldsstyrk til starfsmannaskipta safna.
  • Hver styrkur er að hámarki 300.000 krónur.

Námskeið/fyrirlesarar

  • Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sótt um einn verkefnastyrk af tegundinni Námskeið/fyrirlesarar.
  • Þessi tegund styrks er hugsuð sem styrkveiting til námskeiðshalds eða fyrirlestra innanlands sem gæti nýst stærri hóp safnamanna
  • Hver styrkur er að hámarki 300.000 krónur.

Annað um símenntunarstyrki

  • Nýta má styrki innanlands jafnt sem erlendis.
  • Önnur nýting styrkja er einnig möguleg.
  • Símenntunarstyrkina skal nýta fyrir árslok 2019.
  • Ekki verða veittir styrkir fyrir símenntun, námskeið eða fyrirlestra sem er búið að sækja eða er lokið þegar umsóknarfresti lýkur.
  • Sama umsóknareyðublað er fyrir báðar styrktegundir, merkt er við hvaða tegund er átt við.

Sótt er um símenntunarstyrk á umsóknavef safnaráðs:  https://safnarad.is/umsoknavefur/
Beinn tengill á umsóknareyðublað

Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2018.

Athugið að ef símenntunarstyrkur fæst, þarf að skila til safnaráðs skýrslu um nýtingu styrksins ásamt staðfestingu um að styrkurinn hafi verið nýttur í símenntun.

Verklag vegna úthlutunar úr safnasjóði má finna hér.

Nánari upplýsingar fást hjá Þóru Björk Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra safnaráðs, í síma 534-2234 og í netfangi: thora@safnarad.is

Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 141/2011. Safnaráð veitir umsögn um styrkumsóknir úr safnasjóði. Mennta- og menningarmálaráðherra úthlutar styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins frá 29. september 2015.