Safnaráð minnir á að síðasti skiladagur umsókna um viðurkenningu samkvæmt safnalögum nr. 141/2011, til að umsóknin verði afgreidd áður en umsóknarfrestur í safnasjóð fyrir árið 2019 rennur út, er 31. ágúst 2018. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki afgreiddar fyrr en að lokinni úthlutun úr safnasjóði 2019.
Athygli er vakin á því að nýtt eyðublað vegna umsóknar um viðurkenningu safns gildir frá júlí 2018 auk þess sem samþykkt var á 174. safnaráðsfundi að kalla eftir auknum upplýsingum vegna umsóknar um viðurkenningu safns í viðbót við þau gögn og upplýsingar sem nú er óskað eftir.
Umsóknareyðublað má finna hér, eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókninni:
- Staðfesting frá eiganda og/eða stjórn safns um að óskað er eftir viðurkenningu.
- Afrit af ársreikningi ársins 2017.
- Afrit af gildandi stefnumörkun.
- Afrit af söfnunarstefnu.
- Afrit af neyðaráætlunum.
- Afrit af síðustu úttekt eldvarnareftirlits.
- Afrit af starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti.
- Afrit af síðustu úttekt á öryggiskerfum.
- Afrit af staðfestingu um trygg fjárframlög næstu fimm ára sem tryggja grunnrekstur safnsins.
- Afrit af rekstraráætlun næstu fimm ára.
- Yfirlitsskýrsla umsækjanda um viðurkenningu, fyllt út á umsóknavef safnaráðs.
Aðeins viðurkennd söfn önnur en söfn í eigu ríkisins geta sótt um rekstrarstyrki til sjóðsins. Öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til skilgreindra verkefna. Frekari upplýsingar um viðurkenningu safna er að finna hér.