
Ársskýrsla safnaráðs árið 2017 er komin út og er nú aðgengileg á vef ráðsins. Skýrslan var samþykkt á 171. fundi ráðsins 22. mars síðastliðinn. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi safnaráðs árið 2017 og í viðaukum má finna yfirlit yfir úthlutun úr safnasjóði það ár. Í viðaukum er einnig samantekt á rekstri viðurkenndra safna árið 2016.
Skýrsluna má skoða eða hlaða niður hér.