Samkvæmt safnalögum nr. 141/2011 er safnaráði falið að hafa eftirlit með viðurkenndum söfnum sem starfa eftir skilmálum safnaráðs um starfsemi viðurkenndra safna.
Nú í febrúar munu tuttugu viðurkennd söfn víðs vegar um landið fá tilkynningu um eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum, en um er að ræða 2. hluta eftirlits safnaráðs, Eftirlit með húsakosti safns, aðbúnaði safnkosts, varðveislu gripa og öryggismálum
Er þessi hluti eftirlitsins þróaður í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands, höfuðsafn á sviði menningarminja og hófst þessi hluti eftirlitsins árið 2016. Það ár fengu 13 söfn tilkynningu um eftirlit, árið 2017 fengu 8 söfn tilkynningu og árið 2018 fá 20 söfn tilkynningu um eftirlit eins og kom áður fram. Gert er ráð fyrir því að þau söfn sem eftir standa fái tilkynningu um eftirlit í byrjun árs 2019.
Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum er þríþætt:
- Eftirlit með rekstri safns
Þetta er árlegt eftirlit sem er framfylgt með því að viðurkennd söfn skila Árlegri skýrslu viðurkenndra safna til safnaráðs. - Eftirlit með húsakosti safns, aðbúnaði safnkosts, varðveislu gripa og öryggismálum
Þetta eftirlit fer fram á nokkurra ára fresti og er framkvæmt af eftirlitsnefnd safnaráðs. Er því framfylgt með því að viðurkennd söfn skila eftirlitseyðublöðum safna, fá matsskýrslu eftirlitsnefndar og að lokum með heimsókn eftirlitsnefndar á staðnum. - Eftirlit með skráningu gripa og aðgengi að safnkosti og sýningum.
Framfylgt með úttekt sérfræðinga á staðnum og á gögnum eftir þörfum.
Nánari upplýsingar um eftirlit safnaráðs má finna hér.