Opið fyrir skil á Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2017

Skilafrestur til 31. október 2017

Safnaráði er samkvæmt safnalögum nr. 141/2011 falið að hafa eftirlit með viðurkenndum söfnum sem starfa eftir skilmálum safnaráðs um starfsemi viðurkenndra safna. Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum er þríþætt og er einn hluti þess er eftirlit með rekstri safns og er það gert með yfirferð safnaráðs á Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2017 er varðar rekstrarárið 2016.

  • Skil á Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2017 er í gegnum umsóknavef safnaráðs: https://safnarad.eydublod.is/Forms
  • Innskráning á umsóknarvefinn er í gegnum Island.is
  • Beðið er um upplýsingar er varða rekstrarárið 2016
  • Hægt er að prenta skýrsluna út og fylla inn til undirbúnings
  • Viðhengi sem á fylgja að með skýrslunni er ársreikningur safnsins fyrir 2016
  • Ef safn kýs að skila ársskýrslu safnsins fyrir 2016, þá má senda hana í tölvupósti til safnarad@safnarad.is
  • Ef safnið hefur ekki skráð hjá sér upplýsingar um þá þætti sem spurt er um varðandi gesti safnsins, er þeim tilmælum beint til safnsins að það skrái þær upplýsingar héðan í frá
  • Vinsamlegast skilið eyðublaði í síðasta lagi 31. október 2017
  • Athugið – eingöngu er tekið við Árlegri skýrslu viðurkenndra safna 2017 í gegnum umsóknavef safnaráðs

 

Nánari upplýsingar má fá á vef safnaráðs: https://safnarad.is/umsoknavefur/ eða hjá Þóru Björk Ólafsdóttur framkvæmdastjóra safnaráðs, thora@safnarad.is