Vegna umsókna í safnasjóð 2017 – umsóknarfrestur til 7. desember 2016

Hagnýtar upplýsingar fyrir umsóknavefinn

Safnaráð minnir á að umsóknarfrestur í safnasjóð er út miðvikudaginn 7. desember 2016. Sótt er um í gegnum umsóknavef safnaráðs: https://www.safnarad.is/umsoknavefur-safnarads/opin-skil/
Á vefnum má finna leiðbeiningablað með umsóknum: https://www.safnarad.is/media/leidbeiningar/Umsoknavefur-safnarads—Leidbeiningar-utg2.pdf

NOKKRAR HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR:

  • Í talnareitum er hægt að setja brot (sem dæmi í árlegri skýrslu safna ef að ársverk eru 5,3) en athugið: það fer eftir tungumálastillingum í vafra hvort eigi að nota kommu (5,3) eða punkt (5.3). Prófið ykkur áfram.
  • Sumir notendur hafa verið í vandræðum að setja inn fylgiskjöl, sendið þau þá í tölvupósti til safnarad@safnarad.is
  • Ef umsókn sendist oftar en einu sinni, verður nýjasta útgáfa notuð. Ef vafamál koma upp með hvaða útgáfu eigi að nota, hef ég samband.
  • Vegna rekstrarstyrkjar: ef söfn hafa ekki fengið fjárhagsáætlun 2017 samþykkta, skal senda drög að fjárhagsáætlun. Þegar fjárhagsáætlun er samþykkt skal senda með tölvupósti hana til safnaráðs.
  • Nokkrir notendur hafa unnið þannig að þeir geymi umsóknir í vafra og koma að þeim síðar og halda áfram (án þess að skrá sig inn aftur á Mínum síðum) – hefur borið á því að umsóknir vistist ekki, þrátt fyrir að ýtt sé á SAVE og guli glugginn komi upp
  • ALLTAF SKAL BYRJA HVERJA LOTU Á ÞVÍ AÐ SKRÁ SIG INN Á MÍNAR SÍÐUR OG ENDA HVERJA LOTU Á ÞVÍ AÐ ÝTA Á SAVE!!!Er þetta afskaplega mikilvægt!
  • Kannið á mínum síðum hvort umsóknir ykkar eru sendar, safnaráð sér EKKI vistaðar umsóknir, einungis sendar.

 

Nánari upplýsingar má fá hjá skrifstofu safnaráðs.