Umsóknir í safnasjóð árið 2016

umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2015

Auglýsing v. umsókna í safnasjóð 2016:

Safnaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr safnasjóði á árinu 2016.

Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undirsafnalög nr. 141/2011.  Safnaráð gerir tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins frá 18. september 2013.  Upphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum og umsóknum.

Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði þarf safn að vera viðurkennt safn samkv. safnalögum nr. 141/2011.

Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta sótt um verkefnastyrki.

Við ákvörðun styrkja árið 2016 munu verkefnastyrkir fá aukið vægi á kostnað rekstrarstyrkja.

Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2015.  Umsóknum skal skila með því að fylla út umsóknareyðublað hér.

Eingöngu er tekið við umsóknum sem berast í gegnum umsóknarvef safnasjóðs. Innskráning fer fram í gegnum Íslykil en sækja má um aðgang hér.

Þeim sem hafa hug á að sækja um í sjóðinn er bent á að kynna sér verklag við mat umsókna og úthlutun úr sjóðnum sem finna má hér.