Fjögur söfn fá viðurkenningu

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur tekið til umfjöllunar tillögu safnaráðs frá 2. október 2014 um viðurkenningu safna samkvæmt safnalögum nr. 141/2011. Ráðherra veitti að tillögu ráðsins 4 söfnum viðurkenningu. Það eru Byggðasafn Dalamanna, Byggðasafn Garðskaga, Hvalasafnið á Húsavík og Iðnaðarsafnið á Akureyri.

Safnaráð tekur við umsóknum til afgreiðslu á árinu 2015 til 31. ágúst 2015. Frekari upplýsingar um umsóknarferlið má fá hér.