Styrkjum úr safnasjóði er almennt úthlutað til eins árs í senn. Að verkefni loknu kynnir styrkþegi árangur og niðurstöður fyrir safnaráði með skriflegri skýrslu innan árs frá lokum verkefnis.
Heimilt er að krefjast endurgreiðslu hafi verkefni sem hlotið hefur styrk
- ekki verið unnið í samræmi við umsókn og þau gögn sem styrkveiting var byggð á,
- hafi verkefnið ekki verið unnið samkvæmt skilmálum sjóðsins
- lokaskýrslu ekki verið skilað innan árs frá áætluðum lokum verkefnis,
- Safnaráði er heimilt að hafna umsóknum viðkomandi safns um nýja styrki þar til úrbætur hafa verið gerðar að mati safnaráðs.
Skýrslu um nýtingu verkefnastyrkja skal skila til safnaráðs innan árs frá áætluðum lokum verkefnis á sniðmáti sem má finna hér.
Vinsamlegast athugið að skv. 2. gr. úthlutunarreglna safnasjóðs er styrkjum úr safnasjóði úthlutað til eins árs í senn. Nýti styrkþegi ekki styrk sama ár og honum er úthlutað, fellur styrkurinn niður, nema sérstaklega sé sótt um frestun hans. Umsókn um frest skal vera skrifleg og rökstudd og skal berast skrifstofu safnaráðs.