Auglýsing v. umsókna í safnasjóð 2014

Styrkir til safna skv. safnalögum nr. 141/2011 

Safnaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr safnasjóði á árinu 2014.

Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf þeirra safna sem falla undir safnalög nr. 141/2011.  Safnaráð gerir tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um úthlutun úr sjóðnum samkvæmt safnalögum og úthlutunarreglum ráðsins frá 18. september 2013.  Upphæð og fjöldi veittra styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum og umsóknum.

Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði þarf safn að vera viðurkennt safn samkv. safnalögum nr. 141/2011, frestur til að sækja um viðurkenningu á árinu 2013 rennur út 15. nóvember.

Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta sótt um verkefnastyrki.

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2013.  Umsóknum skal skila með því að fylla út umsóknareyðublað á vefsíðu safnaráðs: www.safnarad.is.   Nánari upplýsingar á skrifstofu safnaráðs.