Safnaráð auglýsir eftir umsóknum um viðurkenningu safna

umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2013

Safnaráð auglýsir eftir umsóknum um viðurkenningu safna skv. safnalögum nr. 141/2011. Safnaráð gerir tillögu um viðurkenningu safns til mennta- og menningarmálaráðherra uppfylli umsóknaraðili skilyrði safnaráðs fyrir viðurkenningu skv. safnalögum og reglugerð   nr. 900/2013

Upplýsingar um skilyrðin ásamt sniðmáti fyrir umsókn er að finna á heimasíðu safnaráðs.

Umsóknarfrestur til að umsóknin verði tekin fyrir á árinu 2013 er 15. nóvember n.k.

Hér má finna sniðmát fyrir umsókn um viðurkenningu safns. Umsókn um viðurkenningu skal fylla út samkvæmt bestu vitund. Síðasti dagur til að skila inn umsókn á árinu 2013 er 15. nóvember. Til að geta  sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði árið 2014 þarf safn að vera viðurkennt safn skv. 10. gr. safnalaga nr. 141/2011.

Hægt er að hlaða sniðmátinu niður og fylla inn í það. Það skal síðan senda til safnaráðs ásamt öðrum gögnum fyrir 15. nóvember 2013 óski umsækjandi eftir því að umsóknin verði tekin fyrir á árinu 2013.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókninni:

 

  • Afrit af ársreikningi ársins 2012.
  • Afrit af gildandi stefnumörkun.
  • Afrit af söfnunarstefnu.
  • Afrit af neyðaráætlunum.
  • Afrit af síðustu úttekt eldvarnareftirlits.
  • Afrit af starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti.
  • Afrit af síðustu úttekt á öryggiskerfum.
Umsækjendur eru minntir á að vista sniðmátið áður en fyllt er inn í það svo engar upplýsingar glatist.
Tekið er við rafrænum umsóknum í tölvupósti á netfangið safnarad@safnarad.is
Einnig má senda umsóknir í pósti til:
Safnaráð
Þjóðminjasafni Íslands
Suðurgötu 41
101 Reykjavík
Safnaráð mun gera tillögur um viðurkenningu safna og senda til mennta- og menningarmálaráðherra sem veitir formlega viðurkenningu.