Þann 6. desember s.l. var 118. fundur safnaráðs haldinn í Þjóðminjasafni Íslands. Fundurinn var öllum opinn og voru þar flutt erindi um starfsemi safnaráðs frá 2001, rekstur safna og breytingar þær sem verða á safnamálum nú um áramótin.
Safnaráð lét taka erindin upp og eru upptökurnar aðgengilegar hér fyrir neðan:
Dagskrá fundar:
15:00 Margrét Hallgrímsdóttir formaður safnaráðs býður gesti velkomna.
15:10 Starfsemi safnaráðs frá 2002-2012, Ágústa Kristófersdóttir framkvæmdastjóri safnaráðs
15:30 Rekstur safna sem njóta styrks úr safnasjóði. Þóra Björk Ólafsdóttir safna- og viðskiptafræðingur.
16:00 Kaffihlé
16:20 Breytingar um áramót, kynning á yfirfærslu verkefna í kjölfar lagabreytinga. Eiríkur Þorláksson sérfræðingur í mennta og menningarmálaráðuneyti.
16:40 Umræður
17:00 Fundi slitið.
Fundarstjóri Guðný Dóra Gestsdóttir.