Samfélagsleg ábyrgð safna: Aðgengi og inngilding
Farskóli safnafólks 2026 fór fram á Ísafirði dagana 7.–9. október síðastliðinn og var haldinn í Edinborgarhúsinu. Yfirskrift farskólans að þessu sinni var samfélagsleg ábyrgð safna með áherslu á aðgengi og inngildingu. Boðið var upp á þétta dagskrá þar sem safnafólk kom saman til að fræðast, ræða brýn málefni í safnastarfi og styrkja tengslin í faginu.

Dagskrá farskólans einkenndist af fjölmörgum málstofum þar sem margvíslegar áskoranir og nýjungar í safnastarfi voru til umræðu. Allt frá þróun hugbúnaðarlausna sem nýta spunagreind við skráningu á safnkosti í Sarpi, yfir í aðgengi fatlaðra að friðuðum húsum og miðlun viðkvæmra og áður þaggaðra málefna í safnastarfi.
Í opnunarerindinu, Fyrir hvern eru söfn?, velti Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, því upp hvernig söfn geta verið opnari og hvernig bæta megi aðgengi fjölbreyttra hópa, s.s. hinsegin fólks og skynsegin einstaklinga, svo að þau geti enn betur endurspeglað samfélagið sem þau þjóna.
Þá fluttu Jóna Símonía Bjarnadóttir, farskólastjóri og forstöðukona Byggðasafns Vestfjarða, ásamt Elmu Guðmundsdóttur, starfsmanni safnsins, erindið, Þér er ekki boðið, þar sem fjallað var um aðgengi – eða öllu heldur hindranir – fatlaðra einstaklinga. Rætt var um gagnsemi þess að fá sjónarhorn og ráðgjöf um aðgengismál beint frá einstaklingum með fötlun, enda skiptir upplifun þeirra öllu máli.

Að lokum fóru fram pallborðsumræður þar sem safnafólk sagði frá reynslusögum úr safnastarfi varðandi inngildingu og aðgengi, en Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs, stýrði umræðunum.
Aðalfundur FÍSOS
Aðalfundur FÍSOS fór fram yfir léttum hádegismat. Þar sem Kristín Halla Baldvinsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu var gengið til stjórnarkjörs. Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, var kjörin nýr formaður FÍSOS, auk þess var kosið um nýjan varaformann og meðstjórnanda. Lagt var til að hækka ársgjald félagsins í 7.000 kr. og að stofnanir greiði 20.000 kr., og var það samþykkt. Að lokum voru þeir sem ekki eru þegar skráðir hvattir til að ganga í félagið.
Skoðunarferð um Suðureyri og Ísafjörð

Safnafólk ferðaðist um Suðureyri og Ísafjörð í fróðlegri og skemmtilegri skoðunarferð. Heimsótt var Suðureyrarkirkja og gengið um bæinn með heimamanni sem sagði frá staðarháttum og sögu. Hópurinn fór svo í heimsókn að Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði, sem í dag hýsir Safnahús Ísafjarðarbæjar. Dagurinn endaði með móttöku í Neðstakaupstað ásamt veitingum og tónlistarflutningi .
Málstofur og fjölbreytt viðfangsefni
Seinni dagurinn hófst með erindi Sigurgeirs I. Þorkelssonar fyrir hönd Samtakanna ’78. Hann fjallaði um stöðu hinsegin samfélagsins og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir og óskaði eftir umræðu um hvernig þessar áskoranir birtast í safnastarfi. Í kjölfarið tóku við margvíslegar málstofur.

Fyrsti málstofuhluti: Auk kynningar á hugbúnaðarlausninni SafnAra fjallaði Vigdís Hlíf í erindi sínu, Stéttskipt safnfræðsla, um niðurstöður úr meistararannsókn sinni um hvernig aðgengi nemenda að vettvangsnámi á söfnum er misskipt. Ingibjörg Eðvaldsdóttir og Guðmundur Lúðvík Gunnarsson frá Þjóðminjasafni Íslands stýrðu málstofunni Átt vin í raun þar var sjónum beint að sameiginlegum áskorunum í rekstri og mannauðsmálum. Sigurður Trausti ræddi opin varðveislurými og Ragnhildur Helga Jónsdóttir og Anna Heiða Baldursdóttir fjölluðu um sjálfboðaliða á söfnum undir yfirskriftinni Inngilding eða „þrælkun“?. Þá fjallaði starfsfólk Borgarsögusafns Reykjavíkur um hinseginleika í safnkosti Ljósmyndasafns Reykjavíkur.

Annar málstofuhluti: Helga Vollertsen og Jóhanna Bergmann stýrðu málstofu um Móttöku sérhópa í safnastarfi. Starfsfólk Borgarsögusafns var einnig með málstofuna Það sem má ekki tala um – Raundæmi, þar sem fjallað var um viðkvæm málefni á sýningu í undirbúningi í Árbæjarsafni. Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, ræddi sögu og framtíð Íslensku safnaverðlaunanna, Árni Pétur Arnason og Þórhildur Tinna ræddu sameiningu smærri safna á landsbyggðinni, Kvikmyndasafn Íslands kynnti miðlun kvikmyndaarfs í erindinu Að opna glugga og fleira.
Þriðji málstofuhluti: Fjallað var um söfn í ferðaþjónustu, áskoranir og tækifæri, en sú umfjöllun var í höndum Anítu Elefsen, Elfu Hlínar og Haralds Þórs. Borgarsögusafn kynnti verkefni um upplifun einhverfs einstaklings á sýningarstöðum safnsins og aðgengi fatlaðs fólks að friðuðum húsum. Áhrif gervigreindar og tækniþróunar á ljósmyndasöfn var til umfjöllunar hjá Herði Geirssyni og Kristínu Höllu. Emily Lethbridge og Marta Guðrún Jóhannesdóttir frá Árnastofnun leiddu málstofuna Vendipunktar & Edda opnar faðminn – söfn, samfélag, samkennd. Þar var fjallað um hvernig nýta megi safnkost til að tengjast flóttafólki og öðrum samfélagshópum og efla gagnkvæman skilning. Að lokum var fjallað um þátttöku Listasafns Íslands í Evrópuverkefnunum EMBARK og CUSP og gerð styrkumsókna – möguleikum þar fyrir safnafólk og söfn.
Safnablaðið Kvistur kom í hús og safnafólk gat gripið sér nýtt eintak. Sigurjón Baldur Hafsteinsson kynnti nýútkomna bók sína Hugvekjur um söfn og samfélag á Dokkunni, þar fór líka fram hinn sívinsæli Pub quiz á vegum Sigurlaugs Ingólfssonar. Glæsileg árshátíð safnafólks var á sínum stað og fór fram í Edinborgarhúsinu undir veislustjórn Einars Viðar og með tónlist frá hljómsveitinni Drumbununum.

Lokadagur farskólans
Síðasta daginn fengu ráðstefnugestir að heyra erindi frá Margréti M. Norðdahl hjá Listvinnzlunni sem er listamiðstöð og faglegur vettvangur í miðborg Reykjavíkur þar sem fatlað listafólk skapar og þróar list sína. Dagskrá farskólans lauk með pallborðsumræðunum Safnið fyrir utan safnið undir stjórn Steinunnar Maríu Sveinsdóttur. Áður en farskólanum var slitið var tilkynnt að næsti farskóli verði haldinn á Húsavík að ári og tók Árni Pétur Hilmarsson, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, við sem nýr farskólastjóri. Jóna Símonía Bjarnadóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir (verkefnastjóri FÍSOS) og Rannveig Jónsdóttir (Listasafni Íslandsfjarðar) fá þakkir fyrir glæsilega skipulagningu á þessum vel heppnaða farskóla.