Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi: Sameiginleg saga okkar og framtíð fyrir öll
Á tímum sem einkennast af hnattrænni spennu, samfélagslegum breytingum og óvissu í umhverfismálum er æ oftar horft til safna sem vettvangs fyrir opna umræðu og aukinn skilning milli fólks. Vorráðstefna ICOM Nord 2026 leiðir saman safnafólk frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum til að velta því fyrir sér hvernig söfn geta hjálpað fólki að tengjast, finna sameiginlegan grundvöll og takast á við breytingar samtímans. Ráðstefnan er haldin af ICOM Nord og Íslandsdeild ICOM, í samstarfi við Félag íslenskra safna og safnafólks og safnaráð, með stuðningi úr safnasjóði.
Ráðstefnan fer fram í Reykjavík 12. maí 2026 í tengslum við þema Alþjóðlega safnadagsins, sem í ár ber yfirskriftina Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi (e. Museums Uniting a Divided World), og tekur jafnframt mið af undirtitlinum Sameiginleg saga okkar og framtíð fyrir öll (e. From Shared Histories to Common Futures). Þá samanstendur dagskráin af fyrirlestrum, pallborðsumræðum og safnaheimsóknum, þar sem sjónum er beint að átökum og samvinnu, endurheimt menningararfs og ábyrgð safna, auk hlutverks þeirra í því að móta skilning okkar á fortíð, nútíð og framtíð.
Dagskrá
Norræna húsið (til kl. 15:00)
9:00-9:30 Innskráning
9:30-10:00 Opnunarávörp:
– Hólmar Hólm, formaður Íslandsdeildar ICOM, og Eero Ehanti, formaður ICOM Nord
– Antonio Rodriguez, forseti ICOM (myndbandsávarp)
– Sabina Westerholm, forstöðumaður Norræna hússins
10:00-10:15 Kaffihlé
10:15-12:00 Fyrir hádegi, lykilfyrirlestrar:
– Repatriation: The Icelandic-Danish Manuscript Dispute,
Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
– On Repatriation in the Now,
Eero Ehanti, formaður ICOM Nord
– On Areas in Conflict: Insights from Ukraine and Greenland,
Søren la Cour Jensen, formaður Bláa skjaldarins í Danmörku
12:00-13:30 Hádegisverður
13:30-15:00 Eftir hádegi:
– A Home for Nature: Museums and Ecology in the 21st Century,
Ragnhildur Guðmundsdóttir, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands
– From Shared Histories to Common Futures,
Pallborðsumræður með fulltrúum landsdeilda
15:00-17:30 Síðdegisheimsóknir á söfn í nágrenninu:
– Þjóðminjasafn Íslands: Þjóð verður til (leiðsögn)
– Stofnun Árna Magnússonar: Heimur í orðum (leiðsögn)
19:00 Ráðstefnukvöldverður: Hnoss, Hörpu
Ráðstefnugjald og skráning
Með hádegisverði, kaffi og kvöldverði:
120 € / 17.000 kr. (án ICOM-aðildar: 140 € / 20.000 kr.).
Með hádegisverði og kaffi:
40 € / 5.800 kr. (án ICOM-aðildar: 60 € / 8.600 kr.).
Kvöldverðurinn er þriggja rétta (drykkir ekki innifaldir).
Mælt er með að skrá sig tímanlega þar sem sætafjöldi er takmarkaður
Hafa samband
Ef spurningar vakna varðandi ráðstefnuna eða greiðslu, vinsamlega hafið samband við Dagrúnu Ósk Jónsdóttur, verkefnastjóra, í tölvupósti á doj@hi.is.
Ráðstefnan er haldin af ICOM Nord og Íslandsdeild ICOM, í samstarfi við Félag íslenskra safna og safnafólks og safnaráð, með stuðningi úr safnasjóði.