Aðalúthlutun 2026
Úthlutunarboð safnaráðs verður haldið í Myndasal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 16. apríl kl.16:00. Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti mun úthluta styrkjum úr aðalúthlutun safnasjóðs við hátíðlega athöfn. Úthlutunarboðið er í beinu framhaldi af vorfundi Höfuðsafnanna og safnaráðs í Þjóðminjasafni Íslands.
Á fundi safnaráðs í desember sl. samþykkti ráðið tillögu um aðalúthlutun úr safnasjóði 2026 sem send var til menningarráðherra til samþykktar, en skv. 7. mgr. 22. gr. safnalaga úthlutar ráðherra styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs. Ráðherra hefur nú ákveðið úthlutun styrkja úr sjóðnum. Hér má finna nánari upplýsingar um skiptingu styrkja.