Nú er hægt að finna eyðublöð fyrir skilaskýrslur um nýtingu styrkja úr Safnasjóði og skiladagur ársins er 1.mars 2026. Við hvetjum þau sem hafa fengið frest eða eiga eftir að skila eldri skýrslum að gera það sem fyrst og minnum á að það er á ábyrgð styrkhafa að skila skýrslum á réttum tíma. Ef skýrslum er skilað seint, þá getur það frestað greiðslum styrkja úr Safnasjóði.
Listi yfir styrki má finna hér fyrir neðan
Skilaskýrslur með skilafrest 1. mars 2026:
- SKÝ25 – Aðalúthlutun 2025 – Styrkur til eins árs – ÁFANGAskýrsla
Nýting styrkja til eins árs úr aðalúthlutun safnasjóðs 2025 – ÁFANGAskýrsla vegna styrkja 1.500.000 kr. eða hærri. Síðasti skiladagur áfangaskýrslu er 1. MARS 2026. - SKÝ24 – Aukaúthlutun 2024 – Nýting styrks
Skýrslu um nýtingu styrks úr aukaúthlutun safnasjóðs 2023 skal skila til safnaráðs í síðasta lagi 1. MARS 2026. - SKÝ24 – Aðalúthlutun 2024 – Öndvegisstyrkur – Áfangaskýrsla 1. og 2. árs
Áfangaskýrsla vegna Öndvegisstyrkja úr safnasjóði 2024 – skýrsla fyrir fyrsta ár (2024) og annað ár (2025): Síðasti skiladagur áfangaskýrslu fyrsta árs er 1. MARS 2025, skiladagur áfangaskýrslu annars árs er 1. MARS 2026. - SKÝ24 – Aðalúthlutun 2024 – Styrkur til eins árs – LOKAskýrsla
Nýting styrkja til eins árs úr aðalúthlutun safnasjóðs 2024 – Lokaskýrsla vegna allra eins árs styrkja. Síðasti skiladagur er 1. MARS 2026. - SKÝ23 – Aðalúthlutun 2023 – Öndvegisstyrkur 23-25 – LOKAskýrsla
Lokaskýrsla vegna Öndvegisstyrkja úr safnasjóði 2023-2025. Síðasti skiladagur lokaskýrslu er 1. mars 2026.