Safnaráð minnir á, að opið er fyrir umsóknir í aukaúthlutun safnasjóðs 2022. Umsóknarfrestur er til kl. 16.00, 5. desember 2022
Styrkir úr aukaúthlutun eru eingöngu í boði fyrir viðurkennd söfn.
Sjá umsóknareyðublað hér: https://safnarad.eydublod.is/Forms/Form/22-UMS-AUK-UMS
UPPLÝSINGAR
Eftirtaldir styrkflokkar eru í boði:
a) Styrkur til stafrænna kynningarmála
-
- Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk a) Styrkur til stafrænna kynningarmála og hlotið mest einn styrk.
- Tilgangur með þessum styrkjum er að efla stafræna kynningu safnanna, hvort sem það er á samfélagsmiðlum eða á eigin heimasíðum.
- Lögð er áhersla á að styrkurinn efli safnið sem viðkomustað fyrir gesti eða kynni starfsemi safnsins.
- Hægt er að sækja um styrki t.d. til að gera efni til birtingar (e. content), til að kosta birtingu, til að fá utanaðkomandi þjónustu til að efla kynningu á samfélagsmiðlum eða heimasíðum eða til kynningar á starfsemi safnsins svo fátt eitt sé nefnt
- Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.
b) Símenntun fyrir starfsmenn safns
-
- Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk b) Símenntun fyrir starfsmenn safns og hlotið mest einn styrk.
- Símenntunarstyrk fyrir starfsmenn safns má nota t.d. til að sækja námskeið eða ráðstefnur hérlendis eða erlendis.
- Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.
c) Vistaskipti milli safna
-
- Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrki í flokk c) Vistaskipti milli safna og hlotið mest einn styrk.
- Vistaskipti milli safna er ætlaður til jafningjafræðslu starfsmanna safna og skal nýtast í ferða- og uppihaldsstyrk.
- Taka skal fram hvaða safn verði heimsótt og hvað skal fræðast um.
- Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.
d) Námskeið/fyrirlesarar – Söfn sækja ein um
-
- Viðurkennd söfn geta í hvert sinn sent inn eina umsókn um styrk í flokk d) Námskeið/fyrirlesarar og hlotið mest einn styrk.
- Hvert safn getur að hámarki hlotið einn styrk í þessum flokki.
- Þessi flokkur styrks er ætlaður sem styrkveiting til safnsins til að halda námskeið/málþing/ráðstefnur eða fá til sín fyrirlestra innanlands sem gæti nýst safninu sem heild sem og stærri hóp safnamanna.
- Hver styrkur og umsókn er að hámarki 300.000 krónur.
e) Námskeið/fyrirlesarar – Samstarfsverkefni viðurkenndra safna
-
- Viðurkennd söfn geta sótt um í samstarfi um styrk í flokk e) Námskeið/fyrirlesarar – samstarfsverkefni. Er samstarfið þá á milli a.m.k. tveggja viðurkenndra safna, einnig geta fleiri aðilar verið þátttakendur í þessum styrkumsóknum.
- Þessi flokkur styrks er ætlaður sem styrkveiting til safnsins til að halda námskeið/málþing/ráðstefnur eða fá til sín fyrirlestra innanlands sem gæti nýst safninu sem heild sem og stærri hóp safnamanna.
- Hvert safn getur verið aðili að fleiri en einni umsókn.
- Ef söfn sækja um í samstarfi, getur hver styrkur og umsókn verið að hámarki 600.000 krónur.
Almennt
-
- Styrkir úr seinni aukaúthlutun flokkast undir verkefnastyrki með áherslu (sjá 3. gr. Úthlutunarreglna safnasjóðs).
- Úthlutað verður úr sjóðnum fyrir árslok 2022.
- Styrki úr seinni aukaúthlutun 2022 skal nýta fyrir árslok 2023, ekki verður gefin frekari frestur á nýtingu styrkja úr aukaúthlutun 2022 – skilafrestur á nýtingaskýrslu er 1. mars 2024.
- Vakin er athygli á því að ekki er hægt að sækja um styrki fyrir verkefnum sem þegar er lokið.
- Ekki er tekið á móti umsóknum eftir að umsóknarfresti lýkur.