Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 12. febrúar.
Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir
- Almennar fjöldatakmarkanir eru 200 manns í hverju hólfi. Athugið að safnaráð fékk undanþágu frá reglugerð nr. 177/2022 frá heilbrigðisráðuneytinu dagsetta 11. febrúar fyrir hönd safna á landinu, þannig að fyrri hámarkstakmarkanir gilda, 500 manns með ákveðnum skilyrðum.
- Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns.
- Eins metra fjarlægðarregla er í gildi.
- Ef ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægðarreglu, þá skal nota andlitsgrímu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.
Almennar reglur eru:
- Almennar fjöldatakmarkanir eru 200 manns.
- Fjarlægðarregla er 1 metri.
Söfn þurfa einnig að:
- Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
- Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
- Minna almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum