Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi 29. janúar og gildir til og með 24. febrúar
Í söfnum gilda eftirfarandi takmarkanir
- Söfn mega taka á móti 100 manns í hverju hólfi að börnum meðtöldum.
- Fyrir hverja 10 m² umfram 100 m² má bæta við fimm viðskiptavinum að hámarki 500 manns. Athugið að þetta á við hefðbundna starfsemi safnsins, ekki viðburði á vegum safnsins eða annarra.
- Eins metra fjarlægðarregla er í gildi.
- Grímuskylda er í söfnum þar sem ekki er hægt að viðhalda eins metra fjarlægðarreglu. Grímuskylda á ekki við um börn fædd 2006 eða síðar.
Almennar reglur eru:
- Almennar fjöldatakmarkanir eru 50 manns.
- Fjarlægðarregla er 1 metri.
- Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af fjarlægðarreglu.
Söfn þurfa einnig að:
- Tryggja aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
- Sinna þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
- Minna almenning og starfsmenn á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum